1500 jarðskjálftar mældust í mars Stefán Árni Pálsson skrifar 11. apríl 2014 21:20 Mýrdalsjökull.
Tæplega 1500 jarðskjálftar mældust með SIL-mælakerfi Veðurstofu Íslands í mars mánuði en þetta kemur fram í frétt á síðu Veðurstofu Íslands. Mesta virknin var við Húsmúla á Hellisheiði. Skjálftahrina varð 8. og 9. mars undir sunnanverðu Kleifarvatni og fannst stærsti skjálftinn í Hafnarfirði og Reykjavík. Í byrjun mars varð smáskjálftahrina suðvestur af Herðubreið. Um 14 jarðskjálftar mældust á Reykjaneshrygg. Stærsti skjálftinn var 2,5 að stærð og átti upptök við 63,3°N. Flestir hinna skjálftanna áttu upptök við Geirfugladrang og vestur af Reykjanestánni seinni hluta mánaðarins. Á niðurdælingarsvæði Hellisheiðarvirkjunar við Húsmúla mældust um 350 smáskjálftar. Mest var skjálftavirknin þann 2. mars og einnig 23. mars en þá mældist stærsti skjálftinn á svæðinu 2,1 stig. Á Tjörnesbrotabeltinu mældust um 180 jarðskjálftar. Meirihlutinn var á vesturhelmingi Húsavíkur-Flateyjar misgengisins austur af Flatey og fyrir mynni Eyjafjarðar. Stærsti skjálftinn, 2,7 að stærð, varð klukkan hálfeitt aðfaranótt 21. mars, um fimm kílómetra norðaustur af Gjögurtá. Undir Mýrdalsjökli mældust um 120 jarðskjálftar í mars. Þar af voru rúmlega 50 staðsettir inni í Kötluöskjunni, allir innan við tvö stig. Smáhrina var í lok mánaðarins í vestanverðri öskjunni. Í mars mældust tæplega 300 skjálftar í Vatnajökli og Dyngjufjöllum.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira