Ákvörðun ráðherra sögð skapa óvissu um framtíð Landbúnaðarháskólans Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 25. mars 2014 13:23 Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, og Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. vísir/gva
Bændasamtök Íslands hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla menntamálaráðherra um málefni Landbúnaðarháskóla Íslands. Haft er eftir Illuga Gunnarssyni menntamálaráðherra í Fréttablaðinu í dag að skólinn þurfi að grípa til nauðsynlegra aðgerða til að ná fram þeirri hagræðingu sem honum sé ætlað. Ofan á hafi orðið sjónarmið sem hann telji skammsýn og hvorki til þess fallin að styrkja héraðið né nám og vísindastarfsemi í búvísindum. Skólinn verður af innviðafjárfestingu upp á tæpar 300 milljónir króna næstu tvö ár sem ráðgerð var í tengslum við sameiningu skólans við Háskóla Íslands. Er skólanum í staðinn gert að hefja þegar endurgreiðslu á ríflega 760 milljóna króna framúrkeyrslu fjárlaga síðustu ár. Fyrirhuguð sameining mætti andstöðu hjá stórum hluta aðstandenda skólans, sveitarstjórn í Borgarfirði og Bændasamtökum Íslands, auk þingmanna Norðvesturkjördæmis. „Þessi ákvörðun ráðherra skapar verulega óvissu um framtíð skólans og þróun í íslenskum landbúnaði og er þvert á áform um verulega uppbyggingu skólans,“ segir í yfirlýsingunni en undir hana ritar Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna. „Útspil ráðherra vekur furðu í ljósi þess að hann var áður reiðubúinn til þess að byggja upp starfsemi á Hvanneyri og Reykjum. Í stað þess dregur hann nú fram refsivöndinn þegar hann nær ekki fram fyrirhugaðri sameiningu. Þetta er einnig sérkennilegt í ljósi stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla innlenda matvælaframleiðslu.“Yfirlýsingin í heild sinniVegna ummæla menntamálaráðherra um málefni Landbúnaðarháskóla Íslands.Landbúnaðarháskóli Íslands verður af 300 milljóna króna framlagi ríkisins næstu tvö árin þar sem horfið hefur verið frá sameiningu skólans við Háskóla Íslands, samkvæmt því sem fjölmiðlar hafa eftir menntamálaráðherra, Illuga Gunnarssyni, í dag, þriðjudaginn 25. mars. Að auki er skólanum gert að endurgreiða ríkinu uppsafnaðan rekstrarhalla undanfarinna ára. Þetta gerir ráðherra, að eigin sögn, vegna andstöðu þingmanna, Bændasamtakanna og heimamanna við áform hans um sameiningu.Þessi ákvörðun ráðherra skapar verulega óvissu um framtíð skólans og þróun í íslenskum landbúnaði og er þvert á áform um verulega uppbyggingu skólans. Útspil ráðherra vekur furðu í ljósi þess að hann var áður reiðubúinn til þess að byggja upp starfsemi á Hvanneyri og Reykjum. Í stað þess dregur hann nú fram refsivöndinn þegar hann nær ekki fram fyrirhugaðri sameiningu. Þetta er einnig sérkennilegt í ljósi stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla innlenda matvælaframleiðslu.Búnaðarþing undanfarinna ára hafa ályktað um framtíð skólans enda mikilvægt fyrir íslenskan landbúnað og þróun hans að í landinu séu til öflugir skólar sem sinna endurmenntun bænda, starfsmenntanámi, háskólanámi og rannsóknum í landbúnaði. Sjálfstæðir og öflugir landbúnaðarháskólar eru mikilvægur hlekkur í framþróun og framtíð íslensks landbúnaðar og forsenda þeirrar sóknar sem fyrirhuguð er í innlendri matvælaframleiðslu. Standa þarf vörð um sjálfstæði landbúnaðarháskólanna og ástæða er til að óttast að ef yfirstjórn þeirra færist til Reykjavíkur, fjari fljótlega undan skólum staðsettum á landsbyggðinni.Sveitarstjórn Borgarbyggðar setti á stofn vinnuhóp um framtíð háskóla í sveitarfélaginu. Í hópnum sitja fulltrúar sveitarfélagsins, Bændasamtakanna, atvinnulífsins í héraði og rektorar LbhÍ og Bifrastar. Ráðgjafar KPMG unnu greiningu á því hvernig mismunandi valkostir, það er, sameining við HÍ eða sjálfstæði skólans koma út. Þar kom fram að rekstrarfyrirkomulagið sjálfseignarstofnun gæti haft marga kosti fyrir skólann, vegna möguleika á aukinni tengingu við atvinnuveginn, til að tryggja starfsmenntanámið og vegna þess að það form gæti gefið meiri sveigjanleika varðandi eignaþróun en verið hefur síðustu árin.Það er brýnt að skólinn fái heimild til að þróa starf sitt og þær eignir sem honum tengjast en áætlað verðmæti þeirra er um 3,5 milljarðar. Þær tillögur sem menntamálaráðherra hefur kynnt um ýmsar eignatilfærslur, ný verkefni og aukna fjármuni henta í raun prýðilega fyrir sjálfseignarstofnun eða sjálfstæðan ríkisháskóla. Áréttað skal að vel hefur verið staðið að starfsmenntanámi bænda í gegnum tíðina. Bændaskólinn á Hvanneyri var stofnaður árið 1889 og með háskóladeild frá 1947 sem var fyrsta háskóladeild utan Háskóla Íslands. Einnig hefur verið garðyrkjunám í boði frá Reykjum frá árinu 1939.Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands
Tengdar fréttir Skammsýni að sameinast ekki HÍ Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri þarf að draga verulega saman seglin til að halda sér innan fjárlaga og endurgreiða framúrkeyrslu síðustu ára. Menntamálaráðherra hefur kallað eftir áætlun þar að lútandi hjá rektor skólans. 25. mars 2014 07:00 Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Sjá meira
Skammsýni að sameinast ekki HÍ Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri þarf að draga verulega saman seglin til að halda sér innan fjárlaga og endurgreiða framúrkeyrslu síðustu ára. Menntamálaráðherra hefur kallað eftir áætlun þar að lútandi hjá rektor skólans. 25. mars 2014 07:00