„Ekkert því til fyrirstöðu að fara ræða málið í þinginu“ Stefán Árni Pálsson skrifar 25. mars 2014 19:06 visir/daníel „
Þetta mun snerta um 100 þúsund heimili,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, í þættinum Reykjavík síðdegis í dag. Á ríkisstjórnarfundi í morgun voru frumvörp ríkisstjórnarinnar til leiðréttingar á höfuðstól húsnæðislána og séreignasparnað kynnt og samþykkt. Þau verða kynnt þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna á morgun og síðdegis verða frumvörpin svo kynnt blaðamönnum. „Þetta er mjög stór hluti af öllum heimilum í landinu og í raun megnið af íslenskum heimilum þegar við skoðum báða þætti þessara aðgerða.“ Sigmundur segist vera mjög spenntur fyrir því að þessar tillögur séu loks að verða að veruleika. „Frumvörpin eru klár og búið að afgreiða þau á ríkisstjórnarfundi og því ekkert því til fyrirstöðu að fara ræða málið í þinginu.“ Sigmundur telur að þar eigið málið eftir að ganga hratt fyrir sig. „Menn eru að miða við að um miðjan maí geti fólk farið að sækja um. Það verður mjög einfalt ferli og mun ríkisskattstjóri koma að því með okkur. Þar hefur verið hannað heilmikið kerfi þar sem fólk getur slegið inn lágmarksupplýsingar og þá fara hjólin að snúast.“ Forsætisráðherrann viðurkenndi að málið hefði kannski verið örlítið flóknara en hann gerði ráð fyrir. „Þó maður hafði gert sér grein fyrir því að auðvitað væri þetta flókið þá koma upp fjölmörg álitamál þegar vinnan fer af stað. Það má kannski segja að þetta sé eins og þegar menn byrja að gera við gamalt hús þá kemur alltaf meira og meira í ljós.“ Sigmundur segir að það hafi þurft að leysa úr ýmsum flækjum þegar á hólminn var komið.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Sjá meira