Samtök atvinnulífsins saka formanninn um smekkleysi Kristjana Arnarsdóttir skrifar 23. nóvember 2013 16:25 Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Samtök atvinnulífsins sendu frá sér yfirlýsingu fyrr í dag þar sem formaður Verkalýðsfélags Akraness, Vilhjálmur Birgisson, er sakaður um smekkleysi í kjarabaráttu sinni. Samtök atvinnulífsins sendu frá sér auglýsingu fyrr í vikunni og vakti hún mikla athygli. Verkalýðsfélag Akraness og Framsýn, stéttarfélag Þingeyinga, fordæmdu auglýsingaherferðina og sögðu félögin að lítið væri gert úr kröfum verkafólks um hækkun lægstu launa. Verkalýðsfélag Akraness birti svo í gærkvöldi myndskeið úr kvikmyndinni Der Untergang, en myndin fjallar um síðustu daga Adolfs Hitlers. Heitir myndskeiðið Haustfundur hjá Samtökum atvinnulífsins. Í yfirlýsingu frá SA sem barst í dag segir meðal annars að nú sé búið að grípa til ódýrra og ósmekklegra áróðursbragða þar sem hjólað sé í fólk og dregin upp af því skrumskæld mynd. Vilhjálmur Birgisson formaður sé einnig kominn niður á áður óþekkt plan í samskiptum verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda. Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér að neðan. Tilkynning frá Samtökum atvinnulífsinsSamtök atvinnulífsins hafa fengið sterk viðbrögð við birtingu auglýsingar sem sýnir hvernig of miklar launahækkanir hér á landi á undanförnum árum hafa leitt af sér mikla verðbólgu og á endanum engu skilað til aukins kaupmáttar íslenskra heimila. Þar er jafnframt á myndrænan hátt sett fram greining Seðlabanka Íslands á því hver þróun gæti orðið hér á landi í umhverfi mun minni launabreytinga en hingað til hefur verið raunin.Sú mynd sem þar blasir við er talsvert önnur en sú sem við höfum búið við undanfarin ár og áratugi. Verðbólga yrði mun minni, hagvöxtur mun meiri, störfum myndi fjölga umtalsvert og kaupmáttur íslenskra heimila einnig. Í stuttu máli yrði þróun efnahagsmála hér á landi með svipuðum hætti og nágrannar okkar á Norðurlöndunum hafa búið við undanfarna áratugi. Í ljósi þessa hafa SA hvatt til samstillts átaks til að kveða verðbólguna niður. Það skili skuldsettum heimilum og fyrirtækjum mestum ávinningi til skemmri og lengri tíma litið.Á traustum grunni Því sætir hörð gagnrýni verkalýðshreyfingarinnar á auglýsinguna nokkurri undrun. Þær staðreyndir sem þar eru settar fram eru allar byggðar á opinberum gögnum um launa- og verðlagsþróun hér á landi og á Norðurlöndunum, sem og á fyrrnefndri greiningu Seðlabanka Íslands. Þeirri gagnrýni sem þar er að finna er ekki beint gegn launþegum fremur en atvinnurekendum eða stjórnvöldum heldur felst fyrst og fremst í sér gagnrýni á það ástand sem við höfum hér búið við og ábendingar um leiðir til úrbóta. Þessi gagnrýni er ekki ný af nálinni. Hana hafa fjölmargir aðilar á borð við Seðlabanka Íslands, OECD og Samstarfsvettvang um aukna hagsæld tekið undir svo dæmi séu tekin.Sú gagnrýni sem sett hefur verið fram á auglýsingu SA af hálfu fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar að undanförnu hafa í engu hrakið þennan einfalda sannleik. Of miklar launahækkanir hér á landi hafa leitt af sér of mikla verðbólgu og til lengri tíma litið grafið undan stöðugleika íslensku krónunnar. Það breytir engu hvort horft er til þróunar undanfarinna fimm, tíu eða tuttugu ára, eða enn lengra aftur ef því er að skipta. Myndin sem við blasir er hin sama. Þetta var einnig reynsla annarra Norðurlanda og þau hafa fyrir margt löngu síðan breytt vinnubrögðum sínum við gerð og framkvæmd kjarasamninga og uppskorið ríkuglega.Margar ástæðurAð baki þeirri mynd sem hér er dregin upp búa fjölmargar ástæður. Launaskrið hefur verið allt of mikið og grafið undan forsendum þeirra kjarasamninga sem gerðir hafa verið; áherslur í fjármálum hins opinbera hafa oftar en ekki kynt verðbólgubálið með umfangsmiklum skattalækkunum og stórauknum útgjöldum á tímum þenslu. Þessi þróun hefur síðan valdið miklu ójafnvægi í efnahagslífinu sem birst hefur í viðvarandi viðskiptahalla og að lokum gengislækkunum með reglulegu millibili. Þessi atburðarás hefur verið endurtekin á 7 til 10 ára fresti um áratuga skeið og veldur bæði atvinnurekendum og launafólki vonbrigðum. Í engu er verið að varpa ábygðinni á þróun mála alfarið á launafólk, atvinnurekendur bera líka sína ábyrgð ásamt ríki og sveitarfélögum.Í ljósi þess að íslensk heimili og fyrirtæki eru mjög skuldug hafa Samtök atvinnulífsins lagt á það höfuðáherslu í þeim kjaraviðræðum sem nú standa yfir að verðbólgan verði kveðin niður þannig að hægt sé að lækka vexti, leggja grunn að nýrri sókn í atvinnumálum, skapa ný störf og tryggja Íslendingum betri lífskjör. Heimilin skulda 2.000 milljarða króna og hvert prósentustig verðbólgunnar leggur 20 milljarða byrði á heimilin. Það er því til mikils að vinna að ná verðbólgunni niður.Smekkleysa og rangt farið meðÍ ályktun Verkalýðsfélags Akraness og Verkalýðsfélagsins Framsýnar 22. nóvember er málflutningur Samtaka atvinnulífsins kallaður „ósmekklegur hræðsluáróður". Í stað þess að ræða málið efnislega er í ályktuninni gripið til ódýrra og ósmekklegra áróðursbragða þar sem hjólað er í fólk og dregin upp af því skrumskæld mynd.Formaður Verkalýðsfélags Akraness hefur síðan gengið enn lengra og sett fram brot úr kvikmynd um einn illræmdasta einræðisherra sögunnar fyrr og síðar með eigin textaskýringum þar sem atvinnurekendur eru settir í hlutverk nasista. Myndbútinn setti formaðurinn inn á samfélagsmiðla í gærkvöld og dreifði ánægður samkvæmt fréttum af uppátækinu. Þar fer formaðurinn niður á áður óþekkt plan í samskiptum verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda. Samtök atvinnulífsins eru hvenær sem er tilbúin í rökræðu um kjarasamninga og efnahagsmál en frábiðja sér slíka smekkleysu.Í pistli á vef Verkalýðsfélags Akraness í dag fer formaðurinn síðan rangt með þegar hann fullyrðir að verkafólk sem fái greidd laun samkvæmt umsömdum kauptöxtum hafi hækkað mun minna í launum en aðrir. Staðreyndin er sú að lágmarkslaunin hafa hækkað um 63,2% frá janúar 2008, eða úr 125.000 kr. í 204.000 kr. Lægsti kauptaxti hefur hækkað um 60,1% á sama tíma, úr 119.752 kr. í 191,752 kr. Launavísitalan hefur hækkað um 40,4% á sama tíma. Kaupmáttur lágmarkslaunanna hefur hækkað um 11% en kaupmáttur á mælikvarða launavísitölu hefur lækkað um 5%.Við eigum valÍslendingar eiga val um hvert leiðin liggur næstu árin. Ef rétt er á málum haldið er hægt að leggja hér grunn að velferð sem er sambærileg og hjá frændþjóðum okkar á Norðurlöndum. Vandi þeirra var sá sami og við höfum glímt við, of miklar launabreytingar, of há verðbólga og afar óstöðugt og fallandi gengi viðkomandi gjaldmiðils. Þau brugðust við og hafa síðan fetað nýja slóð með hækkun launa í hægum skrefum yfir langan tíma sem hefur bætt lífskjör þeirra mun meira en Íslendingum hefur tekist með miklu meiri launahækkunum en þar tíðkast.Það er hægt að snúa þróuninni við og innleiða hér norrænan árangur en til að svo megi verða þurfum við að fara að fordæmi frænda okkar og leggja áherslu á verðstöðugleika og minnka sveiflur í efnahagslífinu. Það er ekki nóg að niðurstöður kjarsamninga séu í samræmi við efnahagslegar forsendur. Fyrirtækin þurfa að sýna ábyrgð og aga hvert um sig í ákvörðunum sínum um verð og laun. Til þess að ná árangri þarf samhent átak allra; aðila vinnumarkaðar, fyrirtækjanna, Seðlabankans og stjórnvalda.Á mánudag munu aðilar setjast að samningaborðinu en samningar á almennum vinnumarkaði renna út í lok mánaðar. SA hafa lagt á það áherslu að gerðir verði einfaldir kjarasamningar til skamms tíma en tíminn verði notaður vel fram til næsta hausts til að búa í haginn fyrir samninga til lengri tíma sem leggi grunn að bættum lífskjörum Íslendinga og sterkari stöðu íslenskra heimila og fyrirtækja.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira