Minnisvarðinn Sigursteinn verði reistur á Skaganum Elimar Hauksson skrifar 9. september 2013 07:00 Svona hugsar Baski sér að sigursteinn gæti litið út. Bæjastjóri Akraness segist fullviss um að steininum verði fundinn góður staður.
Myndlistarmaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson hefur unnið drög að minnisvarða um árangur knattspyrnumanna frá Akranesi. Steininn vill hann nefna í höfuðið á knattspyrnuhetjunni Sigursteini Gíslasyni frá Akranesi. Bjarni, sem er betur þekktur undir listamannsnafninu Baski, vill reisa minnisvarðann á æfingasvæðinu hjá Akranesvelli og hefur sent bæjarstjórn Akranesbæjar erindi þess efnis. „Mín hugmynd er að hafa stein sem geymir nöfn allra sem einhvern tímann hafa orðið Íslandsmeistarar með Akranesi í fótbolta, og þá á ég við alla flokka stelpna og stráka frá 1946 til dagsins í dag,“ segir Baski. Hann segir steininn jafnframt hugsaðan sem hvatningu fyrir unga fólkið til að standa sig vel. „Ég er búinn að grafa upp nærri þúsund nöfn en síðan verða auðir fletir fyrir komandi kynslóðir til að koma á.“Bjarni Skúli KetilssonAðspurður um tilkomu hugmyndarinnar segir Baski að nafn Sigursteins hafi kveikt hana. „Ég kom með þessa hugmynd fljótlega eftir að Steini lést. Mér fannst þetta góð hugmynd þar sem nafnið hans þýðir í raun sá sem vinnur.“ Baski segir steininn alls ekki hugsaðan sem sorgarstein heldur sem hvatningu fyrir unga fólkið til að ná langt. „Steini vildi hvorki láta syrgja sig né annað. Steininn er því hugsaður sem hvatningarsteinn fremur en sorgarsteinn.“ Þrátt fyrir að vera búsettur í Hollandi ber Baski sterkar taugar til Akranesbæjar. „Ég er sjálfur fæddur og uppalinn á Akranesi og er mjög annt um minn heimabæ. Því væri mjög gaman að fá tækifæri til að gera verk fyrir Akranes,“ segir Baski. Hann segir kostnað við verkið vera um fjórar til fimm milljónir, lauslega reiknaðar þegar allt er talið, og leitar nú styrktaraðila að verkinu. Bæjarstjóri Akranesbæjar, Regína Ásvaldsdóttir, segir bæinn taka vel í hugmyndina en að bærinn vilji fyrst fá afstöðu Íþróttabandalagsins til verkefnisins. „Bæjarfélagið hefur almennt ekki forystu um verkefni sem þessi en við höfum hins vegar eitthvað að segja um staðsetninguna. Ég er viss um að við getum fundið þessu verkefni góðan stað á Akranesi,“ segir Regína.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fleiri fréttir Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Sjá meira