Ekki viðbótarfjármagn vegna geislafræðingadeilu Heimir Már Pétursson skrifar 30. júlí 2013 10:59 Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra vonast til að samningar náist á milli spítalans og geislafræðinga.
Heilbrigðisráðherra treystir því að geislafræðingar og yfirstjórn Landsspítalans nái saman um niðurstöðu í deilu sinni á grundvelli gildandi stofnanasamnings og því er ljóst að viðbótarfjármagn kemur ekki til spítalans frá stjórnvöldum til að koma í veg fyrir að geislafræðingar gangi út af spítalanum á fimmtudag. Fulltrúar geislafræðinga og stjórnenda Landsspítalans áttu fund með Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra í morgun, en um 40 geislafræðingar hafa sagt upp störfum á Landsspítalnum og hætta störfum næst komandi fimmtudag fái þeir ekki einhverja breytingu á sínum kjörum. Heilbrigðisráðherra segist hafa óskað eftir fundinum með geislafræðingum og stjórnendum spítalans til að fá upplýsingar um stöðu mála. „Og þau gerðu mér ágæta grein fyrir því um hvað málið snýst. Ég vænti þess að þau vinni sína vinnu og treysti því að aðlilar málsins innan þessarar stofnunar nái saman um það að heilbrigðisþjónusta í landinu geti gengið stóráfallalaust á þessum ágæta vinnustað,“ segir heilbrigðisráðherra. Kristján Þór segir að til að aðilar málsins nái saman þurfi þeir að komast að einhverri málamiðlun. Honum sýnist að það ætti að vera hægt innan svigrúms sem gildandi samningar heimili. Málinu svipar til þess þegar hjúkrunarfræðingar sögðu upp störfum í stórum stíl fyrir nokkrum mánuðum, en þá juku stjórnvöld fjárveitingar til spítalans um 400 milljónir til að bæta mætti kjör þeirra. Er einhver svipuð lausn möguleg í þessu máli „Það verður að vinna úr þessu máli innan þeirra heimilda sem Landsspítalanum eru gefnar og kjarasamningur segir til um, sem geilsafræðingar og ríkisvaldið eiga aðild að. Innan þeirra gildandi samninga sem um þessi mál véla verða menn að finna lausn á þessari deilu,“ segir Kristján Þór. Almennar launabreytingar komi væntanlega fram við gerð kjarasamninga, en nú sé verið að ræða útfærslu á stofnanasamningi og innan þess ramma verði menn að finna lausn. „Í því umhverfi verða geislafræðingar og stjórnendur Landsspítalans að spila en ekki fara út fyrir það,“ segir ráðherra. Ef ekki náist samningar og geilsafræðingar yfirgefi störf sín taki við neyðaráætlun fyrir spítalann. „Ég bara treysti því ennþá að til þess þurfi ekki að koma. Reiði mig á það að þetta fólk sem ber ábyrgð á þessu verkefni finni á því viðhlýtandi lausn,“ segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Erlent Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Erlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Sjá meira