Erlendir glæpahópar skipulagðari en innlendir Kristján Hjálmarsson skrifar 30. júlí 2013 15:24 Í eina mansalsmálinu sem dæmt hefur verið í hér á landi voru erlendir glæpamenn á ferð, að því er segir í skýrslu greiningardeildar Ríkislögreglustjóra.
Flest bendir til að erlendir glæpahópar á Íslandi séu skipulagðari en innlendir, að því er segir í nýrri skýrslu sem greiningardeild ríkislögreglustjóra vann um skipulagða glæpastarfsemi og hættu á hryðjuverkum. Á þetta einkum við um hópa sem rætur eiga að rekja til Mið- og Austur-Evrópu og þá sérstaklega Póllands og Litháens. Greiningardeild ríkislögreglustjóra telur að þessir hópar muni eflast á næstu árum. Staða þeirra á fíkniefnamarkaði sé sterk, sambönd við framleiðendur og birgja erlendis traust. Í skýrslunni segir að starfsemi erlendu glæpahópanna sé síður háð tilviljunum og að meiri „atvinnumenska“ einkenni hana t.a.m. hvað verkaskiptingu varðar. "Þekkt er að einstaklingum innan þessara hópa sé „skipt út“ og enginn efi er á því að hingað til lands hafa beinlínis verið fluttir menn til að fremja afbrot." Í skýrslunni segir þó að alhæfingar séu varasamar enda sé lífið í undirheimum "kvikt og um margt ófyrirsjáanlegt" þar sem "bandalög myndast og tvístrast á víxl." Þótt margt bendi til þess að erlendir hópar á Íslandi sinni einkum fíkniefnasmygli, -framleiðslu og -dreifingu er ljóst að þessir aðilar eru tilbúnir að láta til sín taka á flestum sviðum afbrota. Þekkt er að erlendir hópar stundi skipulögð rán og gripdeildir, að því er segir í skýrslunni. Þá liggja fyrir sterkar grunsemdir þess efnis að hópar þessir komi að fjárkúgunum og hótunum innan samfélaga útlendinga hér á landi. Greiningardeild telur ástæðu til að ætla að hópar þessir muni frekar en hitt eflast á næstu árum. Staða þeirra á fíkniefnamarkaði er sterk, sambönd við framleiðendur og birgja erlendis traust og geta og kunnátta til að sinna íslenska markaðinum er til staðar.Skýrsluna má nálgast í heild sinni hér.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira