"Reyndir menn halda spilunum þétt að sér og treysta engum" 30. júlí 2013 15:33
Í nýrri skýrslu sem greiningardeild Ríkislögreglustjóra gaf út í dag kemur fram að miklar breytingar hafi orðið á fíkniefnamarkaðnum hér á landi síðustu ár. Þar segir að á árunum fyrir hrun hafi verið veruleg eftirspurn eftir dýrari fíkniefnum á borð við kókaín. Verðið var þá sem áður hátt en áhætta var talin ásættanleg að því marki að auðvelt var að koma efnunum í verð, þynna þau út og þar með ná fram miklum hagnaði. Greiningardeildin segir að kókaíni sé enn smyglað inn í landið en innflutningurinn hafi minnkað í takt við breytta eftirspurn sem er fyrst og fremst komin til vegna þess að neytendur hafa minna á milli handanna. Þá segir í skýrslunni að eftir hrunið hafi haft veruleg áhrif á fíkniefnamarkaðinn. Til dæmis sé allt kannabis, sem neytt er hér á landi, ræktað hér á landi. Nokkrir aðilar standa að umtalsverðri kannabis-framleiðslu hér á landi og hafa náð góðum tökum á henni. „Þessir menn fá oftar en ekki aðra til að sinna ræktuninni og hafa af henni verulegar tekjur ef marka má tiltækar upplýsinga. (...) Reyndir menn á þessu sviði halda spilum þétt að sér og treysti í raun engum. Þannig leggja heildsalar áherslu á að koma sér upp fáum en traustum viðskiptavinum neðar í keðjunni,“ segir í skýrslunni. Eftirspurn eftir kannabisi hefur farið vaxandi hér á landi á síðustu árum. Í skýrslunni segir að ljóst sé að „tískusveiflur“ gangi yfir á þessum markaði eins og öðrum.Skýrsluna má lesa hér.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Fleiri fréttir Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Sjá meira