Banaslys á Langjökli: Jók hraðann umtalsvert Boði Logason skrifar 30. júlí 2013 16:24 Langjökull
Rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi hefur í gær og í dag unnið að rannsókn á tildrögum banaslyss sem varð á Langjökli í gær þegar karlmaður um sextugt missti stjórn á vélsleða sem hann ók með þeim afleiðingum að sleðinn valt og hann lést en eiginkona mannsins, sem var farþegi á sleðanum, kastaðist af sleðanum og brotnaði á fæti auk þess sem hún skrámaðist í andliti og víðar. Í tilkynningu frá lögreglu segir að hjónin hafi verið þáttakendur í skipulagðri ferð á jökulinn þar sem ferðamennirnir leigja sér sleða og aka í röð eftir fyrirfram afmarkaðri braut eftir að hafa fengið öryggisbúnað og leiðbeiningar um aksturinn. „Ökuhraði í þessum brautum er jafnan lítill, 10 til 15 km/klst. Áður en lagt er af stað í ferðina undirritar viðkomandi yfirlýsingu þess efnis að hann hafi réttindi til aksturs sleðanna útgefin í heimalandi sínu. Undanfari fer fyrir hópnum auk þess sem annar starfsmaður leigunnar er í röðinni fyrir um það bil miðju og loks þriðji starfsmaðurinn aftastur. Aksturinn virðist hafa farið eðlilega af stað en síðan tók maðurinn sig út úr röðinni, jók hraðann umtalsvert og við það kastaðist konan af sleðanum. Síðan virðist sleðinn hafa farið a.m.k. 2 veltur og stöðvaðist. Maðurinn var meðvitundarlaus en með lífsmarki þegar að var komið og hlúðu starfsmenn að honum um leið og þeir kölluðu eftir aðstoð. Hann var úrskurðaður látinn á vettvangi af lækni í þyrlusveit Landhelgisgæslunnar en konan var flutt á sjúkrahús í Reykjavík til aðhlynningar,“ segir í tilkynningunni. Eldsneytisgjöf vélsleða er við stýrishandfang sleðans. Venjan er að ökumaður þrýsti á hana með þumalfingri hægri handar og beinist rannsóknin m.a. að því hvort búnaður sleðans hafi verið í lagi og þá hvort ökumaðurinn hafi gripið utan um eldsneytisgjöfina og stýrishandfangið og haldið eldsneytisgjföfinni þannig fastri í botni en ætla má að óvönum fatist við svo mikla inngjöf sem af slíkum handbrögðum hlytist. Fyrir liggur að ökumaðurinn var allsendis óvanur því að aka vélsleða en hafði einhverja reynslu af akstri á „vespum". Verið er að afla upplýsinga um ökuréttindi hans. Veður á Langjökli, þegar slysið varð, var gott, logn, sólbráð og 14 stiga hiti og færð í samræmi við það sem búast má við á sumartíma á jökli. Hinn látni hét Jin Jee Dzan og var fæddur þann 10.02.1951 frá Tævan.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Fleiri fréttir Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Sjá meira