Vilja Pál Magnússon úr stóli útvarpsstjóra Kristján Hjálmarsson skrifar 9. desember 2013 14:35 Melkorka Ólafsdóttir, Guðmundur Andri, Guðrún Pétursdóttir, Vigdís Grímsdóttir, Fríða Rún, Auður Jónsdóttir, Soffía Auður og Unnur Jökulsdóttir.
Hátt í þúsund manns hafa nú þegar skrifað undir áskorun þar sem stjórn Ríkisútvarpsins er hvött til að framlengja ekki ráðningarsamning við Pál Magnússon útvarpsstjóra. Í undirskriftarlistanum er stjórn RÚV hvött til að auglýsa stöðuna lausa. Í áskoruninni, sem ber nafnið Okkar Ríkisútvarp, segir meðal annars. „Við mótmælum því hvernig staðið hefur verið að yfirstjórn Ríkisútvarpsins síðustu ár og hvernig forgangsraðað er í fjármálum stofnunarinnar með aðför að kjarna starfseminnar. Við förum fram á að staða útvarpsstjóra verði auglýst og að sett verði skilyrði um víðtækan skilning á lagalegum skyldum Ríkisútvarpsins og hlutverki almannaútvarps.“ Meðal þeirra sem hafa skrifað undir áskorunina eru margir helstu forkólfar íslenskra lista- og menningarstarfsemi, svo sem: Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands, Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari, Vigdís Grímsdóttir rithöfundur, Auður Jónsdóttir rithöfundur, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Unnur Jökulsdóttir rithöfundur, Edda Þórarinsdóttir leikkona, Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur og gagnrýnandi í Kiljunni, Svanhildur Óskarsdóttir á Árnastofnun og Guðrún Pétursdóttir fyrrverandi forsetisframbjóðandi og forstöðumaður stofnunar Sæmundar fróða. Á síðunni gefst fólki kostur á að gera grein fyrir undirskrift sinni og eru Páli ekki vandaðar kveðjurnar, vilja margir meina að hann misskilji hlutverk sitt illilega. Og Soffía Auður bendir á eftirfarandi: „Páll var ráðinn 2005 til fimm ára og einungis er heimilt að endurnýja þann samning einu sinni (samkvæmt 11. grein laga um ruv.) Hann ráðingartími er einfaldlega á enda og óheimilt að endurnýja samninginn.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Sjá meira