Innlent

Vilja Pál Magnússon úr stóli útvarpsstjóra

Kristján Hjálmarsson skrifar
Melkorka Ólafsdóttir, Guðmundur Andri, Guðrún Pétursdóttir, Vigdís Grímsdóttir, Fríða Rún, Auður Jónsdóttir, Soffía Auður og Unnur Jökulsdóttir.
Melkorka Ólafsdóttir, Guðmundur Andri, Guðrún Pétursdóttir, Vigdís Grímsdóttir, Fríða Rún, Auður Jónsdóttir, Soffía Auður og Unnur Jökulsdóttir.
Hátt í þúsund manns hafa nú þegar skrifað undir áskorun þar sem stjórn Ríkisútvarpsins er hvött til að framlengja ekki ráðningarsamning við Pál Magnússon útvarpsstjóra. Í undirskriftarlistanum er stjórn RÚV hvött til að auglýsa stöðuna lausa.

Í áskoruninni, sem ber nafnið Okkar Ríkisútvarp, segir meðal annars. „Við mótmælum því hvernig staðið hefur verið að yfirstjórn Ríkisútvarpsins síðustu ár og hvernig forgangsraðað er í fjármálum stofnunarinnar með aðför að kjarna starfseminnar.

Við förum fram á að staða útvarpsstjóra verði auglýst og að sett verði skilyrði um víðtækan skilning á lagalegum skyldum Ríkisútvarpsins og hlutverki almannaútvarps.“

Meðal þeirra sem hafa skrifað undir áskorunina eru margir helstu forkólfar íslenskra lista- og menningarstarfsemi, svo sem: Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands, Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari, Vigdís Grímsdóttir rithöfundur, Auður Jónsdóttir rithöfundur, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Unnur Jökulsdóttir rithöfundur, Edda Þórarinsdóttir leikkona, Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur og gagnrýnandi í Kiljunni, Svanhildur Óskarsdóttir á Árnastofnun og Guðrún Pétursdóttir fyrrverandi forsetisframbjóðandi og forstöðumaður stofnunar Sæmundar fróða.

Á síðunni gefst fólki kostur á að gera grein fyrir undirskrift sinni og eru Páli ekki vandaðar kveðjurnar, vilja margir meina að hann misskilji hlutverk sitt illilega. Og Soffía Auður bendir á eftirfarandi: „Páll var ráðinn 2005 til fimm ára og einungis er heimilt að endurnýja þann samning einu sinni (samkvæmt 11. grein laga um ruv.) Hann ráðingartími er einfaldlega á enda og óheimilt að endurnýja samninginn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×