Grunur um íkveikju í Mini Market Jón Júlíus Karlsson skrifar 9. desember 2013 20:15
Pólska verslunin Mini Market í Breiðholti er gjörónýt eftir mikinn bruna í nótt. Eigandinn lagði allt sitt fé í að opna verslunina á sínum tíma og er óviss um hvort hann geti endurbyggt hana að nýju. Grunur er um íkveikju. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um bruna í matvöruversluninni Mini Market laust fyrir klukkan fjögur í nótt. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins sem að sögn varðstjóra var talsverður. Aðeins tók örfáar mínútur að slökkva eldinn. Tæknideild lögreglunnar rannsakaði eldsupptök í dag en vildi ekki staðfesta við fréttastofu að um íkveikju væri að ræða. Eldurinn kom upp við hurð sem áður var annar útgangur verslunarinnar. Allar vörur og tæki verslunarinnar gjörónýt eftir bruna næturinnar.Vinsæl verslun í samfélagi Pólverja Piotr Jakubek hefur rekið þessa vinsælu pólsku matvöruverslun ásamt fjölskyldu sinni undanfarin níu ár. Hann áformaði að kaupa verslunarhúsnæðið, sem verslunin er í, síðar í þessum mánuði. Bruninn setur rekstur búðarinnar í uppnám en óljóst er hvort að tryggingar bæti allt það tjón sem varð í nótt. „Ég trúi þessu ekki. Ég er ekki viss hvað ég ég á að gera,“ sagði Piotr í samtali við fréttastofu Stöðvar 2. Mini Market verslunin hefur verið mjög vinsæl í samfélagi Pólverja á höfuðborgarsvæðinu og hafði fest sig í sessi í Drafnarfelli. „Ég er búinn að setja nánast allt mitt líf í þessa búð og konan mín segir stundum að búðin sé þriðja barnið mitt,“ bætir Piotr við. Líklega mun taka tvo til þrjá mánuði að koma versluninni aftur af stað og því ljóst að jólaverslun er úr sögunni hjá Mini Market.
Tengdar fréttir Bruninn sem gjöreyðilagði matvöruverslun í Breiðholtinu Matvöruverslunin Mini-Market í Eddufellinu brann til kaldra kola í nótt og er verslunin gjörónýt. 9. desember 2013 13:04 „Það er allt brunnið“ Piotr Jakuubek, eigandi Mini-Market, segir að nóttin hafi verið eins og martröð. Verslunin hans brann til kaldra kola og er óvíst að hann geti opnað aftur. 9. desember 2013 11:30 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira
Bruninn sem gjöreyðilagði matvöruverslun í Breiðholtinu Matvöruverslunin Mini-Market í Eddufellinu brann til kaldra kola í nótt og er verslunin gjörónýt. 9. desember 2013 13:04
„Það er allt brunnið“ Piotr Jakuubek, eigandi Mini-Market, segir að nóttin hafi verið eins og martröð. Verslunin hans brann til kaldra kola og er óvíst að hann geti opnað aftur. 9. desember 2013 11:30