14 ára telpa vann hetjudáð í Írabakka Jón Július Karlsson skrifar 9. desember 2013 20:00
Kona liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi eftir að eldur kom upp í íbúð í Breiðholti í nótt. 14 ára telpa vann hetjudáð þegar hún bjargaði móður sinni út úr brennandi íbúð. Kraftaverk segir nágranni. Tilkynnt var um eld í fjölbýlishúsi í Írabakka rétt fyrir klukkan fimm í nótt. Það tók slökkvilið aðeins um fjórar mínútur að komast á staðinn en fjölmennt slökkvilið hafði fyrr um nóttina sinnt útkalli í matvöruverslun í Breiðholti skammt frá. Móðirin liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi að sögn vaktlæknis. Henni er haldið sofandi eftir að hafa hlotið reykeitrun og alvarleg brunasár. Dóttirin var flutt á sjúkrahús með reykeitrun og sömuleiðis kona úr næstu íbúð. Þær hafa verið útskrifaðar af gjörgæsludeild.Telpan óð í gegnum eldhaf Dóttirin kom móður sinni til bjargar með því að aðstoða hana við að komast út úr íbúðinni. Nágranni segir að telpan hafi ætt í gegnum eldhaf til að bjarga móður sinni. „Við vöknuðum við hróp og köll - hróp á hjálp,“ segir Ólafur Snævar Ögmundsson, íbúi í Írabakka 30. „Við næstu dyr á stigaganginum, þar liggur kona í dyragættinni og hrópar á hjálp. Hún hrópaði einnig nafn dóttur sinnar sem var einhvers staðar í eldhafinu í íbúðinni. Ég frétti svo síðar að stúlkan hafi komist á einhvern undraverðan hátt í gegnum eldhafið og hjálpað til við að draga móður sína frá eldinum og hitanum. Ég myndi segja að það væri líkast kraftaverki að stúlkan hafi komist í gegnum eldhafið.“ Eldsupptök eru ókunn að sögn lögreglu. Enginn virkur reykskynjari var í íbúðinni. Fulltrúar Rauða krossins voru kallaðir út og veittu íbúum í Írabakka 30 áfallahjálp. Litlu mátti muna að illa færi. „Það hefði ekki mátt bíða mikið lengur því þá hefði eldurinn jafnvel náð út á gang. Það eru allir íbúar í hættu þegar svona gerist,“ sagði Þórir Steinarsson, varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.
Tengdar fréttir Einn í lífshættu eftir eldsvoða í Breiðholti Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir eldsvoða í fjölbýlishúsi í Breiðholti undir morgun og eru tveir þeirra komnir á gjörgæsludeild. Annar þeirra er í lífshættu vegna brunasára og reykeitrunar, en hinn þarf að dvelja þar vegna reykeitrunar. 9. desember 2013 06:44 Húsvörðurinn yfirfór reykskynjara í gærkvöldi Helga Reinharðsdóttir býr beint á móti íbúðinni sem eldur kom upp í við Írabakka. Flytja þurfti fjóra á slysadeild vegna reykeitrunar. Einn er í lífshættu eftir brunann. 9. desember 2013 10:24 Mæðgur vel svartar af reyk Íbúð í fjölbýlishúsi við Írabakka í Breiðholti er gjörónýt eftir bruna í nótt. Fjórir á slysadeild vegna reykeitrunar. 9. desember 2013 08:21 Stúlkan dró móður sína úr logandi íbúðinni Íbúi við Írabakka klifraði yfir svalir og reyndi að bjarga fjórtán ára stúlku úr brennandi íbúð. "Ég leitaði að stúlkunni en komst ekki langt þar sem íbúðin stóð í ljósum logum,“ segir Ólafur Snævar. Stúlkan dró særða móður sína út. 9. desember 2013 11:11 Hlupu út úr brennandi húsi Skelfing greip um sig meðal íbúa í fjölbýlishúsi við Írabakka 30 í Reykjavík laust fyrir klukkan fimm í morgun þegar mikinn reyk tók að leggja um stigaganginn. 9. desember 2013 05:57 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira
Einn í lífshættu eftir eldsvoða í Breiðholti Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir eldsvoða í fjölbýlishúsi í Breiðholti undir morgun og eru tveir þeirra komnir á gjörgæsludeild. Annar þeirra er í lífshættu vegna brunasára og reykeitrunar, en hinn þarf að dvelja þar vegna reykeitrunar. 9. desember 2013 06:44
Húsvörðurinn yfirfór reykskynjara í gærkvöldi Helga Reinharðsdóttir býr beint á móti íbúðinni sem eldur kom upp í við Írabakka. Flytja þurfti fjóra á slysadeild vegna reykeitrunar. Einn er í lífshættu eftir brunann. 9. desember 2013 10:24
Mæðgur vel svartar af reyk Íbúð í fjölbýlishúsi við Írabakka í Breiðholti er gjörónýt eftir bruna í nótt. Fjórir á slysadeild vegna reykeitrunar. 9. desember 2013 08:21
Stúlkan dró móður sína úr logandi íbúðinni Íbúi við Írabakka klifraði yfir svalir og reyndi að bjarga fjórtán ára stúlku úr brennandi íbúð. "Ég leitaði að stúlkunni en komst ekki langt þar sem íbúðin stóð í ljósum logum,“ segir Ólafur Snævar. Stúlkan dró særða móður sína út. 9. desember 2013 11:11
Hlupu út úr brennandi húsi Skelfing greip um sig meðal íbúa í fjölbýlishúsi við Írabakka 30 í Reykjavík laust fyrir klukkan fimm í morgun þegar mikinn reyk tók að leggja um stigaganginn. 9. desember 2013 05:57