11 kærðir fyrir of hraðan akstur Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 3. september 2013 11:02 Lögreglan á Vestfjörðum tók skráningarmerki af nokkrum ökutækjum á Ísafirði og Patreksfirði. mynd/pjetur
11 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í síðustu viku í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum. Sex ökumenn voru kærðir í nágrenni Hólmavíkur á Djúpvegi og fimm í og við Ísafjörð. Eitt minniháttar óhapp var tilkynnt til lögreglu, litlar skemmdir og ekki slys á fólki. Þá voru skráningarmerki tekin af nokkrum ökutækjum á Ísafirði og Patreksfirði vegna vanrækslu á aðalskoðun og einnig vegna þess að tryggingar voru fallnar úr gildi. Einn ökumaður var kærður vegna gruns um meinta ölvun við akstur. Í tilkynningu segist lögreglan vilja beina því til ökumanna að núna séu margir ungir vegfarendur á ferð fyrr á morgnana en áður og brýnir fyrir ökumönnum að taka tillit til þeirra og aka ávallt sérstaklega varlega í nágrenni við leik og grunnskóla. Þá hvetur lögreglan eldra reiðhjólafólk að vera fyrirmynd þeirra yngri og nota hjálma og áberandi vesti til að ökumenn eigi auðveldara með að sjá þá sem eru á ferðinni á reiðhjólum. Lögreglan vill að lokum benda vegfarendum á leið um Dynjandisheiði á að vegurinn sé með versta móti þessa dagana. Ökumenn lítilla fólksbíla eru sérstaklega hvattir til að gæta varúðar því margar stórar holur eru í veginum og brúarendar geta verið hættulegir.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Sjá meira