Leggja til að tekið verði á móti allt að 14 flóttamönnum Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 3. september 2013 16:17 Í tilkynningunni segir að íslensk stjórnvöld hafi horft sérstaklega til kvenna í neyð við móttöku flóttafólks. mynd/afp
Flóttamannanefnd, sem skipuð er af félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur kynnt áherslur sínar og stefnu um móttöku flóttafólks. Nefndin leggur til að tekið verði á móti einstæðum mæðrum og hinsegin fólki, allt að fjórtán einstaklingum samtals í tveimur hópum á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, lýsir ánægju með tillögu flóttamannanefndar og áherslurnar sem liggja þar að baki: „Með þessu er fullt tillit tekið til forgangsröðunar Flóttamannanefndar Sameinuðu þjóðanna og við nýtum okkur ákveðna sérstöðu íslensks samfélags þar sem fjölbreytt fjölskylduform eru almennt viðurkennd fordómalaust.“ Í tilkynningunni segir að íslensk stjórnvöld hafi horft sérstaklega til kvenna í neyð við móttöku flóttafólks. Að mati flóttamannanefndar séu allir innviðir hér á landi til að taka á móti einstæðum mæðrum góðir og ástæða til að halda því áfram. Þá bendir flóttamannanefnd á að hinsegin fólk sé sérstaklega viðkvæmur hópur flóttafólks. Samkynhneigð sé víða bönnuð með lögum og almenn borgaraleg réttindi samkynhneigðra fótum troðin. Flóttamannanefnd telur réttindi hinsegin fólks vel varin hér á landi og því geti íslensk stjórnvöld lagt lóð sín á vogarskálarnar með því að taka á móti hinsegin flóttafólki. Flóttamannanefnd leggur til að tekið verði á móti tveimur hópum; öðrum í lok desember 2013 og hinum byrjun árs 2014. Lagt er til að tekið verði á móti konum í hættu frá Afganistan sem eru búsettar í Íran eða Sýrlandi en jafnframt að tekið sé á móti hinsegin fólki frá Íran og/eða Afganistan sem er staðsett í Tyrklandi. Miðað er við að tekið verði á móti allt að fjórtán einstaklingum samtals.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu Innlent Fleiri fréttir Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Sjá meira