„Suður-Íslendingar“ vilja vingast við Akureyringa Þorgils Jónsson skrifar 5. september 2013 08:00 Íslendingafélagið í Brasilíu er nokkuð virkt og Mario, sem er hér fyrir miðri mynd, segir hóp Suður-Íslendinga nú stefna að því að koma til Íslands haustið 2014.
Afkomendur Íslendinga sem fluttu til Brasilíu á seinni helmingi nítjándu aldar hafa mikinn hug á því að hlúa að rótum sínum á Íslandi og vinna nú að því að koma á vinabæjarsambandi milli Akureyrar og Curitiba. Mario Reikdal Dos Santos er formaður AISBRA, Íslendingafélagsins í Brasilíu, en móðurafi hans var alíslenskur. „Afi minn hét Karl Magnús Albertsson og fæddist í Brasilíu, en foreldrar hans voru íslenskir innflytjendur. Hann tók síðar upp nafnið Reikdal þar sem þau komu frá Reykjadal,“ segir Mario í samtali við Fréttablaðið. Hann bætir því við að hann hafi alltaf verið meðvitaður um rætur sínar. „Ég held mikið upp á minningu frá því að ég var fimm eða sex ára. Þar sitjum við systkinin með móður okkar uppi í rúmi þar sem hún sýnir okkur National Geographic-tímarit og segir okkur frá landi íss og elda. Hún sagði að þar lægju rætur okkar og rifjaði upp sögurnar sem amma hennar og faðir sögðu henni.“ Mario hefur komið þrisvar til Íslands, fyrst árið 1997. Hann segist hafa verið fyrstur afkomenda Brasilíufaranna til að koma til Íslands og að ferðin hafi verið tilfinningaþrungin. „Ég er ekki mjög viðkvæmur tilfinningalega en þegar ég opnaði bók um sögu Íslands, eftir Jón Hjálmarsson, í bókabúð og fletti upp á kaflanum um flutninga Íslendinga til Brasilíu fór ég að gráta. Það snerti mig afar djúpt.“ Nú stendur yfir vinna við að koma á vinabæjarsambandi milli Akureyrar og Curitiba. Það er vel við hæfi þar sem Íslendingarnir sem fluttu til Brasilíu voru flestir Norðlendingar og sigldu frá Akureyri, og settust svo að í Curitiba í suðurhluta Brasilíu. Curitiba hefur samþykkt málið fyrir sitt leyti. Eiríkur Björgvinsson, bæjarstjóri Akureyrar, segir að þarna séu sameiginlegir hagsmunir sem gaman væri að byggja frekari tengsl á, en ganga þurfi betur frá ýmsum formlegheitum í kringum þessar hugmyndir. „Þetta er skemmtileg þróun og vonandi verða meiri samskipti þarna á milli því að þessi 150 ára saga er mjög merkileg.“
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira