Mál svikahrapps tekið fyrir: Bótakröfur nema tæplega 41 milljón króna Hrund Þórsdóttir skrifar 5. september 2013 18:33 Sigurður mætti ekki þegar mál hans var tekið fyrir í morgun.
Samkvæmt ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu ná brot Sigurðar aftur til ársins 2006. Flest eru þau vegna gjaldeyrisviðskipta, en Sigurður er sagður hafa logið til um góð sambönd sín í bankakerfinu. Sigurður mætti ekki við fyrirtöku málsins í morgun og sagði dómari að ákærða væri skylt að mæta og taka afstöðu til ákærunnar, þrátt fyrir að honum væri illa við veru fjölmiðla á staðnum. Hann hefur farið fram á að þinghald verði lokað og verður sú krafa tekin fyrir eftir helgina, en ákærandi segir engin lagaskilyrði fyrir lokuðu þinghaldi. Sigurður er samtals sagður hafa svikið um 116 milljónir af 16 einstaklingum. Þar af fara 11 fram á skaða- eða miskabætur, eða hvort tveggja og í meðfylgjandi frétt má sjá yfirlit yfir þær bótakröfur sem lagðar hafa verið fram. Upphæðirnar sem brotaþolarnir krefjast eru frá rúmum 200 þúsundum upp í rúmar 13 milljónir króna, og alls nema þær tæplega 41 milljón króna. Við tölurnar bætast í mörgum tilfellum vextir og annar kostnaður. Árið 1999 hlaut Sigurður 20 mánaða fangelsisdóm fyrir að svíkja tugi milljóna króna af aldraðri konu, en var síðan náðaður. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fengust ekki upplýsingar um það í dag af hverju náðunin var samþykkt. Náðanir eru ekki algengar hérlendis en í flestum tilfellum eru ástæður þeirra læknisfræðilegar, það er, heilsufarsástæður eru metnar svo knýjandi að ekki sé hægt að vista viðkomandi í fangelsi. Ekki fengust svör um það í dag hvort sú hefði verið raunin í þessu tilviki. Meintir brotaþolar greiddu Sigurði allt að 16 milljónir króna og misstu þeir sem verst urðu úti nánast allt sitt. Fréttastofa ræddi við marga þeirra í dag en enginn treysti sér til að koma fram undir nafni. Flestir lýsa þeir Sigurði sem siðblindum og var mikið niðri fyrir þegar hann bar á góma. Einn hafði þetta að segja: „Ég gerði mér ekki grein fyrir að um svik væri að ræða fyrr en ég fór að reyna að rukka hann og bankinn sagði mér frá því að þessi maður væri á vanskilaskrá. Ég vissi ekki að hann hefði fengið dóm áður.“ Öðrum varð þetta á orði: „Maður bara skammast sín fyrir að láta fara svona illa með sig. Mig grunaði aldrei að hann væri svindlari.“
Mest lesið Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar Innlent Fleiri fréttir Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Sjá meira