Einn þekktasti uppistandari heims skemmtir í Hörpu Gunnar Leó Pálsson skrifar 24. október 2013 09:00 Kristinn Bjarnason, framkvæmdastjóri Skapandi viðburða, lofar mikilli skemmtun í kvöld. fréttablaðið/daníel „
Hann er að koma hingað til lands í fjórða sinn en hann er með glænýja sýningu,“ segir Kristinn Bjarnason, framkvæmdastjóri Skapandi viðburða, sem stendur á bak við uppistandssýningu Pablos Francisco í Hörpu í kvöld. Með Francisco í för er uppistandarinn Sean Savoy, en sá kom einnig með honum hingað til lands árið 2010. „Sean Savoy kom heldur betur á óvart og stal senunni,“ bætir Kristinn við. Þeir félagar ætla koma fram með nýtt efni í kvöld. Pablo Francisco hefur í mörg ár verið einn þekktasti og virtasti uppistandari heimsins og hefur, eins og fyrr segir, fjórum sinnum komið fram hér á landi. Spurður út í kröfulista uppistandarans segir Kristinn: „Hann er nú ekki með neinn svakalegan kröfulista, síðast vildi hann bara fá sterkan ítalskan subway, kók, kaffi og aðra eðlilega hluti en engin bleik handklæði.“ Francisco ætlar að stoppa á Íslandi í nokkra daga, en hann er mjög hrifinn af landi og þjóð. „Hann stoppar lengur núna heldur en síðast, fer í Bláa lónið og svo eru miklar líkur á því að hann kíki í bæinn um helgina,“ bætir Kristinn við. Francisco á aðdáendahóp í Færeyjum og kemur sá hópur sérstaklega til landsins til að sjá uppistandarann. Kristinn segir það vera mjög gaman að standa í þessum innflutningi og telur að uppistandið ætti að geta gefið fólki ágætis skammt af gleðiefni fyrir veturinn.
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Sjá meira