Erlent

Brátt sér fyrir endann á máli Mannings

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Bradley Manning í fylgd hermanna við upphaf réttarhaldanna í byrjun júní.
Bradley Manning í fylgd hermanna við upphaf réttarhaldanna í byrjun júní. Nordicphotos/AFP
Vitnaleiðslum í máli Bandaríkjastjórnar gegn hermanninum Bradley Manning lauk í síðustu viku. Lokamálflutningur saksóknara hefst í dag og síðar taka verjendur við.

Manning lak til fjölmiðla leyniskjölum frá bandarískum stjórnvöldum og bandaríska hernum. Hann hefur nú setið nærri þrjú ár í fangelsi, en sjálf réttarhöldin hófust ekki fyrr en í byrjun júní á þessu ári.

Mannréttindasamtökin Amnesty International sendu fyrir helgi frá sér yfirlýsingu þar sem þess var krafist að bandarísk stjórnvöldum féllu frá ákæru um að Manning hefði „aðstoðað óvininn“.

Sú ákæra hefði í för með sér þyngstu refsinguna af öllum 22 ákæruliðum málsins, jafnvel dauðarefsingu.

Strax í febrúar játaði Manning sekt í tíu af þessum 22 ákæruliðum, og á yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi fyrir þau brot. Réttarhöldin snúast um hina 12 ákæruliðina, sem Manning segist saklaus af.

„Málsrök stjórnvalda fyrir aðstoð við óvininn eru fáránleg, og það kemur ekki á óvart,“ sagði Widney Brown hjá Amnesty International eftir að vitnaleiðslum var lokið. „Það sem kemur á óvart er að saksóknarar í máli þessu, sem hafa þá skyldu að vinna að framgangi réttlætisins, hafa talað fyrir þeirri kenningu að það að gera upplýsingar aðgengilegar á Internetinu – hvort sem það er fyrir tilstilli Wikileaks, á persónulegri bloggsíðu eða á vefsíðu The New York Times – geti talist aðstoð við óvininn.“

Í tilkynningu frá samtökunum segir að til þess að Bandaríkjastjórn geti sannað að Manning hafi í reynd veitt „óvini Bandaríkjanna“ aðstoð þurfi þau að sýna fram á að hann hafi afhent tilgreindum óvini tilteknar upplýsingar sem gætu reynst skaðlegar Bandaríkjunum. Og þetta hafi hann þurft að gera vísvitandi, eða með „illt í huga“ eins og dómarinn í málinu hefur orðað það.

Lokavitni verjenda í málinu, lagaprófessorinn Yochai Benkler við Harvard-háskóla, sagði að með því að afhenda uppljóstrunarsíðunni Wikileaks mikið magn leynigagna hefði Manning innt af hendi fullkomlega löglegt og mikilvægt verk í þágu blaðamennsku við að upplýsa almenning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×