Rútubílstjórinn fer af landi brott í hádeginu Jakob Bjarnar skrifar 1. ágúst 2013 12:37 Rútan fræga fer af landi brott í hádeginu, með Norrænu, en bílstjórinn var kominn í farbann.
Svissneski rútubílstjórinn, sá sem losaði úr kamri rútu sinnar á Selfossi fyrr í vikunni, fer af landi brott nú í hádeginu með Norrænu, að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum. Bílstjórinn var kominn í farbann en eftir að hann greiddi sekt er hann laus allra mála. Vísir og Bylgjan hafa greint skilmerkilega frá málinu og hefur það vakið talsverða athygli. Vegfarandi varð vitni af því þegar svissneskur rútubílstjóri losaði úr kamri rútu sinnar út í vegkant. Bílstjórinn bar því við þegar á hann var gengið að þetta hafi verið mistök, hann hafi ýtt á vitlausan takka. Eftir að lögreglunni barst tilkynning um brotið gaf sýslumaðurinn á Selfossi út sektarboð. Lögreglan komst á slóð hans og náði í rassinn á honum á Egilsstöðum í gær. Oddur Árnason yfirlögregluþjónn á Selfossi segir það ekki hafa verið flókið mál. „Við fengum tilkynningu um þetta degi eftir að þetta gerðist, ljósmyndir og vísbendingar um hvaða farartæki var þarna á ferðinni. Við náðum svo símasambandi við ökumann rútunnar í gær, og tókum af honum skýrslu í gegnum síma en þá var hann kominn austur á land. Niðurstaðan var sú að honum var gert að mæta á lögreglustöðina á Egilsstöðum, þar sem honum var birt sektargerð og hann gekkst undir að greiða 150 þúsund króna sekt fyrir brot á reglugerð um lögreglusamþykktir, þar sem þetta er alfarið bannað að losa rusl og svona óþrifnað á víðavangi,“ segir Oddur. Oddur segir ekki algengt að mál sem þessi komi til kasta lögreglu, hann minnist þess ekki en segir að kvartanir hafi borist um umgengni húsbíla en ekki að menn hafi verið að losa kamra sína á víðavangi. „Ég minnist þess ekki.“ Oddur vonast til að þetta mál verði til að senda skýr skilaboð. „Ég held að það sé alveg ljóst að þetta sé ekki eitthvað sem menn vilja að lýðist. Niðurstaðan í þessu máli varð þessi. Karlgarmurinn, hann var nú miður sín yfir þessu; vildi meina að hann hafi gert þetta óviljandi og svo sem benti á að þetta væri aðallega skolvatn úr handlaugum, ekki eingöngu kamarinn sjálfur sem þarna var tæmdur. Þannig að, óþrifnaðurinn er fljótur að hverfa. En þetta á ekki við og við eigum ekki að láta þetta yfir okkur ganga,“ segir Oddur Árnason yfirlögregluþjónn á Selfossi.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira