Telur veiðar á hnúfubökum brot á alþjóðasamþykktum Hrund Þórsdóttir skrifar 1. ágúst 2013 18:30
Í Fréttablaðinu í dag hvetur framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna til þess að veiðar verði hafnar á hnúfubaki og segir að félagið hefði áhuga á að stunda slíkar veiðar. Leggur hann til að vísindaveiðar verði stundaðar í fimm ár til að afla gagna til veiðiráðgjafar. Hnúfubökum hefur fjölgað mikið við strendur Íslands. Reglulegar hvalatalningar hófust árið 1987 og þá var stofnmatið um 2000 dýr. Síðan hefur talning farið fram á um sex ára fresti og í síðustu mælingu, árið 2007, var stofnmatið komið í 14 þúsund dýr. Til samanburðar má geta þess að hrefnu- og langreyðarstofnarnir, sem nú eru stundaðar veiðar á, telja um 20 þúsund dýr. Erfitt er að meta áhrifin af fjölgun hnúfubaka á lífríkið. „Við vitum lítið um fæðu hnúfubaks og vistfræðilegt samspil er mjög flókið fyrirbæri að reikna út svo það er ómögulegt að segja til um það,“ segir Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun. Hluti stofnsins heldur til við Ísland árið um kring og fylgir loðnuslóðinni en meginhlutinn fer suður til karabíska hafsins til æxlunar. „Skíðishvalir geta orðið fast að hundrað ára gamlir, verða kynþroska um tíu ára og eiga afkvæmi að jafnaði annað hvert ár,“ segir Gísli. Dýrin verða 30 til 35 tonn að þyngd en magamálið er óþekkt. Langreyðar éta um eitt til eitt og hálft tonn á dag en hnúfubakar eru heldur smærri svo ætla má að þeir borði ívið minna. Sigursteinn Másson, talsmaður Alþjóðadýraverndunarsjóðsins á Íslandi segir yfirlýsingar hrefnuveiðimanna bera vott um örvæntingu. „Það gengur mjög illa hjá þeim, viðskiptin ganga illa og það er tap á þessum veiðum svo þarna eru þeir að reyna að hugsa sér einhverja leið til að fá ríkisstyrki til að halda áfram að drepa hvali,“ segir Sigursteinn. Hann segir að hvergi í heiminum séu stundaðar vísinda- eða atvinnuveiðar á hnúfubökum, einungis frumbyggjar á afmörkuðum svæðum fái að veiða þá á grundvelli mörg hundruð eða þúsunda ára reynslu. Hann segir að veiðar á hnúfubökum væru brot á alþjóðasamþykktum Íslands. „Alþjóðahvalveiðiráðið hvílir á samþykktum byggðum á Sameinuðu þjóðunum sem myndi vera mjög alvarlegt mál fyrir Ísland að fara gegn,“ segir Sigursteinn. Hnúfubakur var síðast veiddur við strendur landsins árið 1954 og alls hafa Íslendingar veitt 6 slík dýr. Nú er spurningin, verða þau fleiri?
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Erlent Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Erlent Fleiri fréttir Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Sjá meira