Bjarni boðar ný og öguð vinnubrögð Þorbjörn Þórðarson skrifar 1. ágúst 2013 19:06 Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, á skrifstofu sinni í ráðuneytinu. Mynd/ÞÞ
Ár eftir ár hefur Ríkisendurskoðun skilað skýrslu um framkvæmd fjárlaga þar sem bent er á agaleysi í rekstri ríkisins. Fjármálaráðherra segir að ríkisstjórnin taki nýrri skýrslu stofnunarinnar mjög alvarlega. Tekin verði upp ný og öguð vinnubrögð við fjármál ríkisins.Eiga erfitt með að fylgja ábendingum Ríkisendurskoðunar Ríkisendurskoðun birti á dögunum skýrslu um framkvæmd fjárlaga þar sem stofnunin er enn sinu sinni að benda á agaleysi í rekstri ríkisins og framúrkeyrslu einstakra stofnana. Stjórnmálamenn virðast eiga erfitt með að breyta út af gömlum vana því margar athugasemda stofnunarinnar eru endurtekið efni úr skýrslu fyrri ára. Sömu stofnanir fara fram úr án þess að forstöðumenn þeirra fái áminningu frá ráðherrum.Hvernig ætlar ríkisstjórnin að bregðast við ábendingum Ríkisendurskoðunar? „Ég mun leggja áherslu á það við sýnum stóraukinn aga í framkvæmd fjárlaga á komandi árum. Liður í því getur verið að endurskrifa lögin um opinber fjármál og fjárreiðulögin hafa verið til endurskoðunar undanfarin ár. Það gæti vel farið svo að á haustdögum kæmi fram frumvarp til þess að taka á þessu vandamáli,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.Geturðu lýst þessu betur? „Það liggja svo sem fyrir á vefnum frumdrög að þessu. Þetta er sá þáttur sem snýr að fjárlagagerðinni og gera hana raunhæfari. Síðan þarf auðvitað framkvæmd fjárlaga, eftir að þau hafa verið samþykkt, að verða betri. Þetta er semsagt tvíþætt verkefni. Annars vegar að gera raunhæf fjárlög, sem eru líkleg til þess að standast og hægt er að gera kröfu til að standist. Og hins vegar að þeim sé fylgt eftir af meiri ábyrgð.“ Bjarni er að tala um þetta skjal hér. Drög að frumvarpi til laga um opinber fjármál. Þar er lagt til að lögfest verði ítarlegri ákvæði en nú gilda um hvernig staðið skuli að stefnumörkun og áætlanagerð í opinberum fjármálum, og mælt er fyrir um grundvallarbreytingar á framsetningu fjárlaga auk þess sem eftirlit með framkvæmd fjárlaga verður gert markvissara. Lögð verður rík áhersla á fækkun málefnaflokka og ráðherrar verða í ríkari mæli gerðir ábyrgir fyrir útgjöldum sinna málaflokka.Kynjuð fjárlagagerð Þá er í 9. gr. frumvarpsins sérstakt ákvæði um kynjaða fjárlagagerð en þar segir að „ráðherrar skulu við gerð á ætlana um öflun og ráðstöfun opinbers fjár og við gerð frumvarps til fjárlaga tryggja að fyrir liggi Kerfisbundnar greiningar á áhrifum fyrirhugaðra fjárráðstafana á stöðu kynjanna.“ Nokkur ákvæði eru í lögunum sem eru hálfgerðar stefnuyfirlýsingar sem erfitt er að sjá hvernig eigi að framkvæma. Þannig segir t.d í 9. gr. að „stefnumörkun í opinberum fjármálum skal stuðla að jafnræði og hagkvæmni við skiptingu opinbers fjár.“ Frumvarpið er afrakstur vinnu starfshóps sem skipaður var í tíð fyrrverandi ráðherra. Bjarni Benediktsson segir að frumvarp í endanlegri mynd verði lagt fram í endanlegri mynd með haustinu.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira