Vinnueftirlitið fer yfir verkferla í kjölfar slyss Sunna skrifar 4. janúar 2013 08:00 Þúsundir slysa verða í rúllustigum um allan heim, en víða erlendis er eftirliti ábótavant, samkvæmt deildarstjóra Vinnueftirlitsins. Fréttablaðið/Vilhelm „
Eftirlitsmaður úr vinnuvéladeild fer í framhaldi af þessu tilviki og skoðar aðstæður sem sköpuðust þarna og þennan tiltekna stiga,“ segir Helgi Haraldsson, deildarstjóri tæknideildar Vinnueftirlitsins. Búnaður verður skoðaður, mögulegt slit, staðsetning neyðarhnappa og merkingar. „Síðan munum við yfirfara okkar skoðanir og vinnulag til að sjá hvort við getum gert eitthvað meira til að fyrirbyggja svona í framtíðinni. Við Íslendingar erum nú bara þannig gerðir að slys eru algjörlega óásættanleg, svo ég tali nú ekki um slys á börnum.“ Fréttablaðið greindi frá slysi í gær þar sem móður tveggja ára stúlku tókst naumlega að losa dóttur sína úr stígvéli sem fest hafði í rúllustiga í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði laust fyrir jól. Stúlkan hlaut minniháttar meiðsl en stígvélið gjöreyðilagðist og var því mikil heppni að hún losnaði. Stiginn hafði verið vottaður af Vinnueftirlitinu í nóvember síðastliðnum. Þúsundir misalvarlegra slysa og óhappa verða í rúllustigum á ári hverju um allan heim. Öryggisvandamál varðandi rúllustiga eru vel þekkt, sérstaklega erlendis, og segir Helgi það koma fyrir að fólk, þá sérstaklega börn, missi tær og jafnvel stærri útlimi í stigum. „Það er mjög margt sem getur farið úrskeiðis; hönnunin, viðhaldið, þjónustan og svo auðvitað hegðun þeirra sem nota stigann,“ segir Helgi. „Hér á landi eru þó bara örfáir stigar og þjónustan og viðhaldið því yfirleitt í lagi.“ Vinnueftirlitið framkvæmir öryggisskoðanir á rúllustigum einu sinni á ári. Þá er meðal annars leitað eftir því hvort til staðar sé þjónustusamningur vegna stigans svo reglubundið eftirlit sé tryggt. Slíkum samningum geti verið ábótavant víða erlendis.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira