Vilja að sveitarfélagið byggi undir lágvöruverðsverslun gar skrifar 30. maí 2013 07:00 Rangæingar telja stóraukinn fjölda ferðamanna sem renna eftir hringveginum um Hvolsvöll geta verið grundvöll fyrir lágvöruverðsverslun í bænum. Fréttablaðið/Vilhelm „
Okkur finnst verslunarkostirnir hér á svæðinu svolítið dýrir og dreymir alltaf um lágvöruverðsverslun,“ segir Elvar Eyvindsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks, sem lagði til í sveitarstjórn Rangárþings eystra að byggt yrði nýtt hús til að liðka fyrir opnun lágvöruverðsverslunar á Hvolsvelli. Í tillögu Elvars og Kristínar Þórðardóttur er lagt til að sveitarfélagið kanni „kosti og galla þess að byggja nýtt verslunarhúsnæði á heppilegum stað í miðbænum." Rangárþing eystra keypti Austurveg 4 þar sem Kaupfélag Rangæinga var áður og Kjarval er nú. Reiknað er með að sveitarstjórnarskrifstofurnar flytji í bygginguna. „Með því að byggja nútímalegt og einfalt verslunarhúsnæði á besta stað má ætla að trompum fjölgi á höndum heimamanna hvað óskir um lágvöruverðsverslun varðar,“ segja Elvar og Kristín og taka fram að sveitarfélagið þurfi ekki að eiga og reka húsnæðið. Það gæti verið í höndum annarra. Verslunin Kjarval er eina matvöruverslunin á Hvolsvelli. Rangæingar hafa lengi reynt að fá einhverja af lágvöruverðsverslununum á svæðið. Elvar segir Kjarval dýra verslun. „Ég giska á að við séum að borga tuttugu til þrjátíu prósent umfram, þannig að þetta er gríðarlegt kjaramál,“ segir Elvar, sem undirstrikar að aðeins sé stungið upp á að málið verði kannað. Ekki verði farið af stað með framkvæmdir nema verslun fáist í húsnæðið. Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri segir að í langan tíma hafi verið rætt við þá sem reki Bónus, Nettó og Krónuna um að koma á Hvolsvöll. Í því felist gífurlegir hagsmunir fyrir heimamenn. „En við sjáum það frekar fyrir okkur í þessu verslunarhúsnæði sem við vorum að kaupa heldur en að byggja sérstaklega yfir lágverðsverslun. Það kostar varla undir 300 milljónum króna að byggja slíkt hús. Það er allt of mikið,“ segir sveitarstjórinn. Hluti tillögu Elvars og Kristínar snýst um að Sögusetrið fái núverandi húsnæði Kjarvals. Sögusetrið líði fyrir staðsetningu sína nokkur hundruð metra frá hringveginum. „Það kemur gríðarlegur ferðamannafjöldi í bæinn og það eru feikileg tækifæri fyrir stað eins og Sögusetrið ef það eru hundrað þúsund manns fyrir utan gluggann,“ segir Elvar Eyvindsson.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Fleiri fréttir Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Sjá meira