Þrettán ára piltur með varanlegan augnskaða eftir leysibendi Hjörtur Hjartarson skrifar 30. maí 2013 19:26 Mjög sterkir leysibendar eru í umferð hér á landi AFP
Þrettán ára piltur hlaut alvarlegan og varanlegan augnskaða eftir að geisla úr leysibendi var beint að augum hans. Það tekur aðeins sekúndubrot fyrir geislann að valda óafturkræfu tjóni á sjón, segir prófessor í augnlækningum. Leysibendar eru alla jafnan notaðir við fyrirlestra og er sú tegund að mestu leyti hættulaus sé farið með gát. En til er önnur og mun hættulegri útgáfa af samskonar tæki með styrk sem er hundrað sinnum öflugri. Sá bendir er sumstaðar löglegur en bannaður í flestum löndum, þar á meðal Íslandi. Talið er að pilturinn hafi verið með slíkt tæki þegar óhappið varð. Hann skaddaðist á báðum augum og missti miðjusjón á öðru þeirra. Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum segir: „Þarna var tæki sem leit út eins og leysirbendill en er 100 milliwött. 100 milliwatta tæki er nægjanlega sterkt til þess að brenna augnbotninn ef því er beint að auganu." Geislavarnir ríkisins eiga tæki til að mæla styrkleika leysibenda en þó á ekki að vera erfitt fyrir hvern sem er að átta sig á hættulitlum og beinlínis skaðsömum bendum. Þorgeir Sigurðsson, fagstjóri hjá Geislavörnum Ríkisins segir: „Leysirbendar sem eru löglegir, það stendur á þeim "caution", þeir eru í flokki tvö, sem er í lagi ef þeir eru merktir rétt samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. Við reynum að ná þeim úr sölu allsstaðar þar sem við sjáum þá. Við höfum séð þá auglýsta á netinu, í búðum, frétt af þeim í innflutningi. Við höfum stöðvað mjög sterka leysa í innflutningi." Eins og heyra má geta svona lítil tæki verið stórhættuleg. Ekki þarf að beina geislanum lengi að augum manneskju til að skaði hljótist af. Einar Stefánsson segir ennfremur: „Þetta gerist á sekúndubroti. Þetta gerist kannski á 0,1 sekúndu og það er svo snöggt að maður nær ekki að loka auganu. Þannig að það er í raun engin leið að verjast svona leysi og það gerir svona sterk leysertæki svo hættuleg.“
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira