Innlent

Fjögurra og hálfs árs dómur fyrir alvarlega líkamsárás

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Maðurinn hlaut fjögurra og hálfs árs fangelsi en áður hafði Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmt manninn í þriggja og hálfs árs fangelsi.

Maðurinn var ákærður fyrir húsbrot, eignaspjöll og tilraun til manndráps með því að hafa ruðst í heimildarleysi inn á heimili eldri manns. Veist þar að honum með margvíslegu ofbeldi og að atlögunni lokinni hefði maðurinn farið um húsnæði þess sem hann réðst á og eyðilagt húsmuni.

Hinn dæmdi játaði að hafa slegið og sparkað í manninn, meðal annars í höfuð mannsins. Meðal þess sem hann notaði til þess að slá manninn með var munnharpa. Hann neitaði að hafa með þessu athæfi gerst sekur um tilraun til manndráps.

Bæði Hæstiréttur og héraðsdómur töldu að ekki væri sannað að hinn dæmdi hefði haft ásetning til þess að bana manninum. Né að honum hefði verið ljóst að bani kynni að hljótast af atlögunni.

Hinn dæmdi bar við minnisleysi en sagði að hann hefði verið á leið heim til móður sinnar þegar honum datt í hug að koma við hjá brotaþola. Maðurinn sem hann réðst á er föðurbróðir móður hans og hann sagðist hafa heyrt af því þegar hann var að alast upp að maðurinn hefði misnotað móður hans þegar hún var á barnsaldri. Hann hefði alla tíð haft horn í síðu mannsins en þeir hefðu aldrei umgengis neitt að ráði.

Áverkar mannsins sem ráðist var á voru meðal annars blæðing inn á heila með bjúgmyndun, brot á vanga- og kinnkjálkabeinum, nefbrot, rifbeinsbrot og versnandi heyrn. Auk þess er brotaþoli haldinn verulegum kvíða og mun hafa þurft að yfirgefa heimili sitt af þeim sökum fyrr en ætlað var.

Fyrir Hæstarétti féll ákæruvaldið frá ákæru um húsbrot og eignaspjöll enda engin kæra frá brotaþola vegna þess. Hinn dæmdi hafði áður verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir líkamsárás, þar af voru níu mánuðir skilorðsbundnir til þriggja ára. Með vísan til þess dóms og fyrri afbrota mannsins þótti hæfileg refsing fyrir hinn  dæmda því fjögur og hálft ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×