48 milljóna rekstrarhagnaður hjá KSÍ á árinu 2012 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2013 17:23 Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ. Mynd/Anton
Knattspyrnusamband Íslands birti í dag inn á heimasíðu sinni ársreikning sambandsins fyrir árið 2012 en rekstrarhagnaður ársins nam tæpum 48 milljónum króna eða fimmtán milljónum minna en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstrartekjur KSÍ á árinu 2012 námu 842 milljónum króna samanborið við 777 milljónir króna á árinu 2011. Hækkun rekstrartekna skýrist fyrst og fremst af auknu framlagi frá UEFA. Rekstrarkostnaður KSÍ var um 795 milljónir króna og var nokkru hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Ástæður þess eru fyrst og fremst aukinn kostnaður við landsliðsverkefni sem voru fleiri á árinu en gert var ráð fyrir. Rekstrarhagnaður ársins nam tæpum 48 milljónum króna, en áætlanir gerðu ráð fyrir rúmlega 63 milljóna króna hagnaði. Að teknu tilliti til fjármagnsliða er hagnaður af starfsemi KSÍ ríflega 72 milljónir króna. Styrkir og framlög til aðildarfélaga á árinu námu 72 milljónum króna vegna barna- og unglingastarfs, leyfiskerfis og fleira. Samþykkt áætlun gerði ráð fyrir styrkjum og framlögum að fjárhæð 77 milljónum króna. Að teknu tilliti til styrkja og framlaga til aðildarfélaga nam hagnaður ársins því um hálfri milljón króna. Fjárhags- og eignastaða KSÍ er traust við áramót og lausafjárstaða góð. Handbært fé hækkar á milli ára og var nú í árslok um 473 milljónir króna. Eignir eru metnar á 892 milljónir króna. Eigið fé KSÍ var ríflega 228 milljónir króna í árslok.
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira