Króatarnir fara heim í hádeginu á morgun Ingveldur Geirsdóttir skrifar 27. maí 2013 19:59
Króatísku flóttamennirnir sem hafa dvalið undanfarið hér á landi í von um að fá hæli fljúga af landi brott á hádegi á morgun. Fimm manna fjölskylda sem dvelur nú í Reykjanesbæ vill ekki sjá það að fara aftur heim og segir ekkert bíða sín þar. Fjörutíu og átta Króatar, mest fjölskyldufólk frá sama svæðinu í Króatíu, komu hingað til lands í kringum áramótin. Á hádegi á morgun verða tuttugu og sjö þeirra sendir heim með flugi beint frá Keflavíkurflugvelli til Zagreb. Ellefu voru farnir úr landi og tíu manns, úr þremur fjölskyldum, verða áfram á landinu í einhvern tíma en króatísk yfirvöld vilja ekki taka við þeim því eiginkonurnar eru ekki með króatíska pappíra. Með í för í fluginu verða læknir, sálfræðingur, túlkur, fulltrúi Mannréttindaskrifstofu Íslands auk starfsmanna lögreglu. Rajakovac fjölskyldan kemur frá Vukovar í austur Króatíu. Fréttamaður hitti þau í byrjun apríl og bjuggu þau þá öll, hjón með þrjú börn, í herbergi á hóteli á Ásbrú. Þau eru nú í íbúð í Reykjanesbæ en á morgun yfirgefa þau hana. Þau bera þá von í brjósti að geta snúið aftur til Íslands þegar Króatía gengur í Evrópusambandið 1. júlí. Íslensk stjórnvöld borga flugið fyrir þau til Króatíu en ekki farið frá Zagreb til Vukovar, hjónin höfðu áhyggjur af að eiga ekki fyrir því. Samkvæmt nýjum upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra er í undirbúningi að Króatísku flóttamennirnir fái farareyri á morgun til að komast til síns heima. Rajakovac hjónin hafa þó meiri áhyggjur af því að koma í heimabæinn því þar bíður þeirra ekkert. Þau hafa ekki þak yfir höfuðið, hafa ekki vinnu og viti ekki hvað verður um þau. „Landið mitt er að ganga í Evrópusambandið í júlí og staða fjölskyldu minnar breytist ekkert við það. Við erum ennþá í miklum vandræðum, hver erum við og hvað erum við? Fólk hugsar að allt sé í góðu í Króatíu út frá því sem það sér í sjónvarpinu en ef þú kæmir þangað og ef þú býrð þar er þetta ekki svoleiðis eins og í fréttunum. Þegar þú býrð í Króatíu veistu hver er sannleikurinn,“ segir Gordana Rajakovac en hún og maður hennar eru bæði Serbar að uppruna og líða fyrir það í Króatíu. Tíu ára dóttir þeirra var byrjuð í skóla í Reykjanesbæ og líkaði vel. Gordana var að vinna í fiskvinnslu og var ein úr hópi flóttamannana sem var að vinna. Þau eru mjög ósátt við afgreiðslu Útlendingastofnunar sem þau segja setja alla undir sama hatt en þau hafi sýnt metnað í að fá vinnu og aðlagast samfélaginu. „Svo erum við sett í sömu körfu og allir hinir. Ég vil ekki fara heim. Ég mun berjast fyrir því að vera hér þangað til flugvélin fer í loftið. Það er ekki rétt hjá íslenskum stjórnvöldum og Útlendingastofnun að senda mig heim því þau skilja okkur ekki og vilja ekki skilja vandræðin sem við erum í,“ segir Srðdan Rajakovac. Þau kærðu höfnun Útlendingastofnunar til innanríkisráðuneytisins en ekki er komin niðurstaða í þá kæru, þrátt fyrir það á að senda þau úr landi.Ummæli Srðdan Rajakovac eru ranglega textuð í sjónvarpsfréttinni. Útgáfan hér fyrir ofan er rétt.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira