Eldsneyti ítrekað stolið af lóð BM-Vallár Hrund Þórsdóttir. skrifar 27. maí 2013 20:40
Stórfelldur stuldur á eldsneyti hefur átt sér stað hjá BM Vallá undanfarnar vikur, síðast nú um helgina. Lögreglan segir að alltaf sé eitthvað um slíka þjófnaði en að nú megi nánast tala um faraldur. Bíræfnir eldsneytisþjófar hafa endurtekið farið í tankana á vörubílum hjá BM Vallá á síðustu vikum og nú um helgina töppuðu þeir á fimmta hundruð lítrum af tveimur bílum. Alls hafa á annað þúsund lítra horfið og er tjónið því verulegt. Pétur Hans Pétursson, framkvæmdastjóri hjá BM Vallá, segir að ekki hafi verið settir lásar á tankana því þá sé hætta á að þjófarnir skemmi bílana enn frekar. „Hluti af svæðinu hér er baklóð sem okkur grunar og við sjáum för, að þeir komi hérna bakatil og hafi fyrir því að fara hérna niður vegginn. Það er eina leiðin, þetta er eina óvaktaða svæðið.“ Svo virðist sem styggð hafi komið að þjófunum um helgina og fannst slanga sem þeir notuðust við á planinu í morgun. „Það virðist sem þeir noti bara slöngu hér í og nota batterísvél sem er tengd við svona garðslöngu og önnur slanga í brúsa og svo bara dæla þeir úr.“ Þjófarnir leggja því augljóslega mikið á sig til að ná olíunni, enda um gríðarlegt magn að ræða. Pétur vill engan þjófkenna en segir augljóst að þeir fingralöngu noti olíuna til einkanota eða endurselji hana. „Þeir virðast alveg búnir að þefa það uppi þessu ágætu herrar sem eru að stunda þetta hér, þennan þjófnað, að þetta eru bílar á ólitaðri olíu og þeir eru greinilega í miklum uppgripum í endursölu á olíu sem við eigum.“ Pétur segir að svæðið hafi verið illa vaktað en því hefur verið kippt í liðinn. Settar hafa verið upp fleiri myndavélar auk þess sem vakt verður á svæðinu fyrst um sinn. „Eldsneytisstuldur hefur átt sér stað víðar undanfarið og virðast þjófarnir oft ansi stórtækir. Lögregla talar jafnvel um faraldur.“
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira