Flytja þúsundir trjáa í brennsluofn Elkem Svavar Hávarðsson skrifar 27. maí 2013 07:00 Á hvern bíl fara um 40 rúmmetrar, sem jafngildir 800 trjám. mynd/þröstur eysteinsson
Skógrækt ríkisins afhendir á næstu vikum kísilmálmverksmiðju Elkem á Grundartanga á annað þúsund tonn af lerkibolum sem hafa fallið til við grisjun skóga í öllum landshlutum. Verksmiðjan getur nýtt 35.000 tonn af timbri á ári. Þröstur Eysteinsson, sviðsstjóri hjá Skógrækt ríkisins, segir þetta eitt dæmi um að nýtt tímabil í skógrækt sem atvinnugrein í landinu sé hafið. „Nú eru komnir skógar á Íslandi sem eru orðnir nógu stórir og gamlir til að hægt sé á hagkvæman hátt að vinna efni til nytja. Þar á meðal til málmvinnslu. Samningur okkar við Elkem er um 1.600 rúmmetrar timburs en þeir geta tekið við eins miklu og við komumst yfir að grisja,“ segir Þröstur en grisjunarviðurinn til Elkem kemur frá fimm skógum Skógræktarinnar, auk tveggja ræktunarsvæða skógræktarfélaga í öllum landshlutum. Spurður um fjölda þeirra trjáa sem felld eru í tengslum við verkefnið segir Þröstur að ekki sé langt frá lagi að um 20 tré séu grisjuð fyrir hvern rúmmetra sem fluttur er til Grundartanga. „Þetta eru því um 24.000 tré sem voru felld núna. Við erum gjarnan að fella um þúsund tré á hektara og skilja eftir eitt til tvö þúsund tré. Því hafa verið grisjaðir um 24 til 30 hektarar af skógi til að framleiða þetta magn. Það er reyndar aðeins lítill hluti þess sem þarf að grisja í skógum hér á Íslandi. Það þarf að grisja á milli tvö til þrjú þúsund hektara lands ef vel ætti að vera,“ segir Þröstur sem bætir við að til að komast yfir slíkt verkefni þurfi betri tæki og tól. Ágætis byrjun væri að fá skógarhöggsvél til landsins. Þorsteinn Hannesson, sérfræðingur hjá Elkem, segir að verksmiðjan á Grundartanga geti notað allt að 35.000 tonn af timbri í framleiðslu sinni ár hvert. Grisjunarviður frá Skógræktinni er þar af um 1.200 til 1.500 tonn og frá Sorpu fást sex til tuttugu þúsund tonn af viðarkurli úr endurunnu timbri, en það magn er mjög breytilegt á milli ára. Það sem upp á vantar af timbri er flutt inn frá Kanada. „Notkun okkar á timbrinu er þannig að því er blandað við annað hráefni sem fer inn á ofninn og umbreytist þar í viðarkol, og það er kolefnið sem nýtist okkur. Timbrið er hlutlaust í tilliti til kolefnislosunar, en annars þyrfti að nýta kolefni sem grafið er úr jörðu; kol, viðarkol eða koks, sem er kolefniseldsneyti úr kolum. Svo þessi leið er umhverfisvæn,“ segir Þorsteinn.
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent Fleiri fréttir Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Sjá meira