Vildi aðskilja heimilisbókhaldið frá hlutabréfaviðskiptum 27. maí 2013 13:23 Kristján Arason að þjálfa FH.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, sagðist ekki finna neinn annan tilgang á gjörningi Kristjáns Arasonar, þáverandi framkvæmdastjóra hjá bankanum, en að koma skuldunum í skjól með stofnun eignarhaldsfélagsins 7hægri ehf. Hreiðar Már bar vitni símleiðis í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Þar sagði Kristján meðal annars að hann hefði viljað aðskilja heimilisbókhaldið og fjármálavafstur sitt. Slitastjórn Kaupþings stefndi Kristjáni vegna þess að hann færði bæði hlutabréf og skuldir sínar í hlutafélagið. Slitastjórnin vill rifta gjörningnum og krefst þess að hann greiði 534 milljónir króna vegna lánasamninganna. Slitastjórnin gerir til vara skaðabótakröfu upp á 388 milljónir króna með dráttarvöxtum. Tapi hann málinu þarf hann að öllum líkindum að greiða rúmlega milljarð til baka séu dráttarvextir taldir með. Kristján neitar alfarið sök. Kristján sagði fyrir dómi að hann hefði árið 2007 fyrst reynt að færa skuldina yfir í einkahlutafélag. Ekkert varð úr því þó. Spurður hversvegna hann hafi viljað færa skuldirnar yfir í einkahlutafélag, sagðist Kristján hafa viljað skilja fjárhag heimilisins og hlutabréfaviðskipta sinna. Í janúar árið 2008 fór Kristján svo á að fund með Hreiðari Má, sem féllst á að færa skuldirnar yfir í einkahlutafélag. Fyrir dómi var Hreiðar spurður af lögmanni slitastjórnar Kaupþings, Guðna Haraldssyni, hvort hann hefði með þessu falllist á að fella niður persónulegar ábyrgð Kristjáns, svaraði Hreiðar Már að hann hefði ekki skilið gjörninginn öðruvísi hjá Kristjáni en hann væri að takmarka eigin áhættu. Fram kom einnig í réttarhöldunum að sama ár var aðeins einn annar starfsmaður bankans sem fékk samskonar lausn sinna mála. Starfsmaður PricewaterhouseCoopers bar einnig vitni, en fyrirtækið sá um endurskoðun á Kaupþingi eftir hrun. Hann sagði að ekkert benti til þess að stjórn Kaupþings hefði skoðað málið sérstaklega, sem lögmaður slitastjórnar taldi undarlegt, sérstaklega í ljósi þess að það var samþykkt á fundi stjórnar að fella niður ábyrgðir starfsmanna. Þá hafi einnig málefni Hreiðars Más sjálfs verið tekin fyrir nokkrum árum fyrir hrun, vegna samskonar máls. Telur lögmaður að slíkt hið sama ætti að gilda um aðra stjórnendur bankans. Guðni Hall, verjandi Kristjáns, sagði málið lítið annað en dulbúið riftunarmál, og reyndi að fá málinu vísað frá í vetur á þeim forsendum, án árangurs þó. Hann benti á að starfsmenn bankans hefðu skrifað undir samninga við Kristján og það væri ekki hans að bera ábyrg á því að ítrustu reglum bankans væri ekki fylgt. Guðni Haraldsson, lögmaður slitastjórnar, sagði ákvörðun forstjórans óvenjulega, ekki síst vegna þess að samningastaða bankans væri mun verri eftir að Kristján færði skuldir og hlutabréf yfir. Þannig spurði Guðni Kristján út í eignastöðu hans. Þar kom meðal annars fram að hann eigi einbýlishús og hlut í hesthúsi- eignir sem Guðni telur að bankinn hefði getað gengið að ef skuldunum hefði ekki verið komið í skjól.
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Fleiri fréttir Inga of upptekin til að funda: Foreldrahúsi verður lokað innan tveggja vikna „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sjá meira