Sólstöðumínútan 17:11, 21. 12. 2013 Þór Jakobsson skrifar 19. desember 2013 07:00 Laugardaginn 21. desember 2013 verða vetrarsólstöður, nánar tiltekið í Reykjavík samkvæmt Almanaki þjóðvinafélagsins kl. 17:11. Frá þeirri stundu fer hádegissól að hækka dag frá degi. Enn mun þó vetur ríkja því að sinn tíma tekur það sólina að verma lofthjúpinn svo að fari að vora. Veðurfar á hverjum stað mótast af úthöfum og lofthjúpi sem vinna í sífellu að því að fleyta ofgnótt sólarorkunnar frá miðbaug í átt til pólanna. Mörg þúsund ár, sennilega tugir þúsunda ára, eru síðan menn byrjuðu að fagna þessum tímamótum í náttúrunnar ríki og halda hátíðir á sumar- og vetrarsólstöðum. Er skemmst frá að segja að jólin tóku á sínum tíma við af hátíð sem upprunalega var haldin í tilefni vetrarsólstaða. Inntakið breyttist en auk þess hafa hátíðahöld nútímans orðið viðskila við sjálfar vetrarsólstöðurnar, daginn sem þær eru. Nú eru bráðum þrír áratugir síðan fyrsta árlega sumarsólstöðugangan í Reykjavík og nágrenni var farin. Lítill hópur samherja hefur skipulagt gönguna og reynt að koma á nýrri hefð sem við vonum að haldist og eflist með tímanum. Leiðin var lengi framan af breytileg frá einu ári til annars en síðasta áratuginn var gengin sama leiðin nokkur ár í röð, m.a. hringleið um Öskjuhlíð nokkrum sinnum og þrjú undanfarin ár um Viðey. Tilgangur sólstöðugöngunnar er í senn jarðbundinn og háfleygur. Annars vegar er auðvitað heilsusamlegt og upplífgandi þegar sól er hæst á lofti að taka þátt í rólegri hópgöngu fólks á öllum aldri, njóta samveru skyldmenna eða kynna við ókunnuga – og þar við bætist fróðleikur leiðsögumanna um það sem fyrir augu ber á göngunni, fróðleikur um náttúru og sögu. En hins vegar er sólstöðugöngunni ætlað að vera dálítil stund til að leiða hugann að ráðgátum tilverunnar og gleðjast yfir lífinu þrátt fyrir strit og erfiðleika, gleðjast yfir því að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í hinu mikla leikriti tilverunnar nokkur ár. Fyrir hundrað árum voru við ekki til og eftir önnur hundrað verðum við ekki til, altént ekki hér! Meginatriði hinnar árlegu sólstöðuhátíðar er sólstöðumínútan sem sólstöðugönguhópurinn hefur nefnt svo, tímamótin tvenn á för jarðar um sólu. Við stöldrum við, sólstöðumínútuna, og íhugum í þögn. Það er eitt sem er magnað við sólstöðumínútuna ef svo mætti segja: hún er á sama tíma um alla jörð! Þetta finnst mörgum augljóst en það er draumur sólstöðuhópsins að fólk víðs vegar um lönd komi sér saman um að fagna sólstöðumínútunni, þá samtímis um alla jörð í „meðmælagöngu með lífinu og menningunni“. Nú á vetrarsólstöðum skulum við staldra við andartak og njóta þess að furða okkur á eigin tilveru. Það borgar sig. Sjáumst svo í næstu sumarsólstöðugöngu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson Skoðun Ekkert ævintýri fyrir mongólsku hestana María Lilja Tryggvadóttir Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir Skoðun „Þótt náttúran sé lamin með lurk!“ Sigurjón Þórðarson Skoðun Nám í skugga óöryggis Sigurður Árni Reynisson Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Tæknin á ekki að nota okkur Anna Laufey Stefánsdóttir Skoðun Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Réttmætar áhyggjur eða ósanngjarnar alhæfingar? Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun „Þótt náttúran sé lamin með lurk!“ Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ekkert ævintýri fyrir mongólsku hestana María Lilja Tryggvadóttir skrifar Skoðun Nám í skugga óöryggis Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Tæknin á ekki að nota okkur Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ytra mat í skólum og hvað svo? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslaust Ísland! - Með hjálp stefnu um skaðaminnkun Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Meðsek um þjóðarmorð vegna aðgerðaleysis? Pétur Heimisson skrifar Skoðun Tími ábyrgðar í útlendingamálum – ekki uppgjafar Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun Takk starfsfólk og forysta ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Þjóðarmorðið í Palestínu Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Eldra fólk, þolendum ofbeldis oft ekki trúað Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Tölfræði og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Umgengnistálmanir – brot á réttindum barna Einar Hugi Bjarnason skrifar Skoðun Frá dulúð til daglegs lífs: Hvernig nýjasta gervigreindin vinnur með þér – og gerir þig klárari Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar Skoðun Baráttan um þjóðarsálina Alexandra Briem skrifar Skoðun Lagaleg réttindi skipta máli Kári Garðarsson skrifar Skoðun Pride and Progress: Advancing Equality Through Unity Clara Ganslandt skrifar Skoðun Hver rödd skiptir máli! Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Sýnum þeim frelsið Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar
Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun Frá dulúð til daglegs lífs: Hvernig nýjasta gervigreindin vinnur með þér – og gerir þig klárari Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar
Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar
Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir Skoðun