Misstu alla von um að finna ástina á bar Ugla Egilsdóttir skrifar 14. desember 2013 10:00 Meðlimir Kvennakórsins Kötlu og Bartóna halda sig mikið í 101 Reykjavík.
Karlakórinn Bartónar og Kvennakórinn Katla efna til uppákomu í Gamla bíói á þriðjudaginn sem kallast Jólastórtónleikar. Karlakórinn Bartónar er fjögurra ára gamall karlakór sem var stofnaður af fastagestum Kaffibarsins. „Upphaflega var hugmyndin að æfa eitt skemmtiatriði til að troða upp eitt kvöld, en þetta endaði sem þrjátíu manna karlakór sem hefur starfað óslitið síðan,“ segir Jón Svavar Jósefsson, kórstjóri Bartóna.101 þúsund krónur söfnuðust til styrktar Barnaspítala Hringsins á jólatónleikunum í fyrra.„Við fórum í samstarf við Kvennakórinn Kötlu í fyrra. Kórstýrurnar eru þær Hildigunnur Sverrisdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir. Ástæðan fyrir því að við fórum í þetta samstarf var að strákarnir voru almennt mikið í makaleit, sem var kannski fyrirséð, enda allir fastagestir á bar. Þeir voru búnir að missa alla von um að finna ástina á barnum og vildu leita að henni eftir öðrum leiðum. Þess vegna fundum við upp á þessu. Við héldum jólatónleika með Kvennakórnum Kötlu í fyrra til styrktar Barnaspítala Hringsins og það má segja að við höfum fengið það sem við vorum að leita eftir út úr þessu samstarfi. Þess vegna ákváðum við að endurtaka leikinn með enn stærri tónleikum fyrir þessi jól. Við færðum okkur úr Tjarnarbíói yfir í Gamla bíó þar sem er töluvert stærri salur.“ Ágóðinn af tónleikunum rennur til Krafts, sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein. Jón Svavar segir vera ástæðu til að hvetja fólk sem er bugað af svartsýni og neikvæðni til að mæta. „Við erum bjartsýnisfólk. Yfirbragð þessara kóra er svo létt. Tónleikunum má líkja við eins konar andlegt hopp. Við fáum áheyrendur til að hoppa með okkur. Markmiðið er að bæta andlega heilsu áheyrenda. Ekki veitir af. Mér finnst fólk ansi neikvætt oft og ekki nógu djarft. Það heldur sig til baka með óöryggi. Við bjóðum fólki upp á andlega megrun á neikvæðni og svartsýni. Það má segja að tónleikarnir okkar séu sjálfshjálparbók í tónleikaformi. Samkvæmt jólagjafaspesíalistum er jólagjöfin í ár sjálfshjálparbók. Hugmyndalausum foreldrum sem eiga ólæsa unglinga má benda á að það má gefa miða á tónleikana í snemmbúna jólagjöf.“Jólastórtónleikarnir fara fram í Gamla bíói þriðjudaginn 17. desember klukkan 20.
Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira