Íslenskt barnaefni slær í gegn Gunnar Leó Pálsson skrifar 13. desember 2013 11:00 Þorleifur Einarsson hefur lagt talsvert á sig við brúðugerð og hann hefur búið til alls15 brúður. mynd/skjáskot úr þáttum „
Við erum rosalega ánægð með viðtökurnar og stolt af þessu þriggja sería safni,“ segir Þorleifur Einarsson, leikstjóri, brúðugerðarmaður og einn handritshöfunda barnaefnisins Daginn í dag. Þriðja serían af barnaefninu var frumsýnd við góðar undirtektir í Sambíóunum í Egilshöll fyrir skömmu fyrir fullum bíósal. Um er að ræða alíslenskt barnaefni sem skrifað er af Þorleifi, Guðna Má Harðarsyni og Guðmundi Karli Brynjarssyni en báðir þeir síðarnefndu eru prestar í Lindakirkju. Fyrsta serían var ódýrt tilraunaverkefni sem þó stendur enn fyrir sínu en þættirnir hafa þróast heilmikið síðan árið 2010.Seríurnar saman„Ég sagði strax já við Guðna, þegar hann bað mig að vera með. Það er svo gefandi að að vinna með þessar erkisögur vestrænnar menningar, sem miðla góðum gildum og siðferði, og færa þær í nútímalegt samhengi íslenskra barna í dag “ segir Þorleifur. En það var ekki dans á rósum að koma efninu út. „Þetta er 95 prósent fjármagnað styrkjalaust og það leggjast allir á eitt við að framleiða efnið. Það vinna allir verkefnið af ástríðu, hugsjón og eldmóði,“ bætir Guðni Már við. Þorleifur bjó til allar brúðurnar sem fram komu í þáttunum en þær eru alls um fimmtán. „Þar sem fjármagnið var nú ekki mikið til að moða úr, þá, eins og máltakið segir, kennir neyðin naktri konu að spinna. Ég kunni ekkert í brúðugerð en náði þó að nýta myndlistarbakgrunn minn, YouTube-myndbönd og aðstoð móður minnar til að búa brúðurnar til,“ útskýrir Þorleifur, sem notaði meðal annars borðtenniskúlur, plastskeiðar og ýmislegt annað forvitnilegt við gerð brúðanna.Mikil aðsókn var á frumsýningu Dagsins í dag þrjú sem fram fór í Sambíóunum í Egilshöll.mynd/atli þór einarssonSalan á fyrsta disknum, Daginn í dag eitt, gekk mjög vel, sem varð til þess að Skálholtsútgáfan gat spennt bogann aðeins. „Við renndum blint í sjóinn með fyrsta diskinn en hann seldist mjög vel og gátum við því lagt aðeins meira í diska tvö og þrjú sem teknir voru upp á sama tíma sumarið 2012. Einnig vorum við líka að svara mikilli eftirspurn,“ bætir Guðni Már við. Efni þáttanna er fjölbreytt en þeir fjalla um krakkana Hafdísi og Klemma sem leikin eru af Hafdísi Mariu Matsdóttur og Jóel Inga Sæmundssyni, sem rata í skrautleg ævintýri sem kallast á við þema hvers þáttar. Atburðarásin er síðan brotin upp með vinsælum sunnudagaskólalögum.„Það kom okkur mikið á óvart hversu breitt aldursbil þessir þættir spanna en við vitum til þess að krakkar á aldrinum tveggja til þrettán ára hafi gaman af þáttunum,“ bætir Þorleifur við. Ásamt leikatriðum, brúðum og söng, sér Gunnar Júlíusson um að teikna myndir sem eru svo hreyfðar af Atla Þór Einarssyni svo úr verða alíslenskar teiknimyndir, þema hvers þáttar, byggðar á dæmisögum Jesú. Innlegg by Daginn í dag.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira