Kalla fram bros hjá börnum í neyð Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 11. desember 2013 07:00 Fótboltar geta breytt verulega upplifun barna í erfiðum aðstæðum, hvort sem er vegna náttúruhamfara, átaka, flótta eða annars. Fyrir 3.562 krónur er hægt að gefa hvorki fleiri né færri en fimm fótbolta. Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona.
Frægir leggja UNICEF lið við að vekja athygli á sönnum gjöfum fyrir jólin. Sannar gjafir eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir bágstödd börn. Gjöfunum sem fólk kaupir í vefverslun UNICEF er dreift til barna og fjölskyldna þeirra í samfélögum þar sem þörfin er mikil.„Ég valdi þessa gjöf vegna þess að menntun er einfaldlega lykillinn að betri framtíð. Börn víða um heim dreymir um að ganga í skóla og þessi gjöf hjálpar svo sannarlega til við að færa þau nær þeim veruleika. Þessi pakki með fjörutíu stílabókum og fjörutíu blýöntum kostar aðeins 2.394 krónur. Skólagögnin eru svo send á vettvang þangað sem þörfin er brýnust og eftir nokkrar vikur fæ ég upplýsingar um til hvaða lands gjöfin mín var send. Þetta er falleg gjöf sem bæði gleður og gerir gagn.“ Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur."Ég vel næringarmjólkina. Ég er sjálf nýbökuð móðir og ég má ekki til þess hugsa að ungbörn fái ekki næringu. Ég legg mitt af mörkum til að hjálpa til." Gunna Dís, útvarpskona."Ég vel bóluefni gegn mænusótt. Það einfaldlega bjargar lífi barna!" Ebba Guðný, PureEbba."Á Íslandi erum við svo heppin að geta alltaf fengið hreint vatn. Með einni svona vatnshreinsitöflu er hægt að hreinsa fimm lítra af vatni og gera það drykkjarhæft. Það finnst mér vera góð gjöf." Hilmar Guðjónsson, leikari.„Ég vel mótorhjól því það er svo mikið rokk og ról!“ Björn Thors, leikari."Ég vann sjálf um tíma í hjálparstarfi í Mósambík og hef séð með eigin augum hvað malaría er mikill vágestur. Ég valdi moskítónet því þau eru besta forvörnin gegn malaríu. Tölfræðin segir okkur að á hverri mínútu falli að minnsta kosti eitt barn í valinn vegna hennar. Fyrir aðeins rúman 2.500 kall er hægt að kaupa fimm stykki!" Brynja Þorgeirsdóttir, dagskrárgerðarkona.„Ég gef sanna gjöf, plumpy-nut jarðhnetumaukið, því ég hef séð með eigin augum það kraftaverk sem það getur gert. Þetta er næringaríkt jarðhnetumauk sem er vítamín- og steinefnabætt og skiptir sköpum í meðferð barna sem þjást af vannæringu. Það þarf ekki að blanda maukið útí vatn og börnin geta bara borðað það beint úr pakkanum. Í langflestum tilfellum þarf hvert barn um þrjá pakka af maukinu á dag í fáeinar vikur til þess að ná fullum bata. Með því að gefa þessa gjöf mun vannært barn fá tækifæri til þess að vaxa og þroskast, tækifæri sem það myndi kannski ekki annars fá. Er til betri gjöf?“ Gunnar Hansson, leikari. „Það er mikilvægt fyrir heilsu barna að fá að leika sér. Þess vegna veljum við að gefa fótbolta sem sanna gjöf.“ Haukur Harðarson og Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamenn. Lífið á Facebook.
Mest lesið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Lífið samstarf Laufey Lín er mætt til Springfield Bíó og sjónvarp Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Lífið Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlist Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Lífið Alþjóðleg bragðáhrif verða sífellt vinsælli Lífið samstarf Fleiri fréttir Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Sjá meira