Smellir af þegar fólk er hætt að fylgjast með 7. desember 2013 12:00 "Ég fer aldrei neitt án þess að vera með myndavélina með mér.“ MYND/EINAR SNORRI „
Boston er bara svo flottur staður – þangað kemur svo skemmtilegt fólk. Listamenn og bóhem. Svo er ég góður vinur hennar Siggu sem á staðinn, og fékk leyfi hjá henni til að sniglast um með myndavélina,“ segir Brynjar Snær Þrastarson ljósmyndari sem gefur út ljósmyndabókina Boston hinn 10. desember næstkomandi. Þar er að finna hundruð ljósmynda af gestum á skemmtistaðnum Boston undanfarin ár.„Þessi mynd var tekin á nýársfagnaði Boston árið 2010 ef ég man rétt. Þarna sést Sigga, eigandinn og góð vinkona mín, í faðmlögum við fastakúnna.“MYND/BRYNJAR SNÆRKveikjan að bókinni var ný myndavél. „Ég hef verið að gera þetta, með pásum, í þrjú eða fjögur ár. Það er engin mynd uppsett í bókinni. Ég reyni oftast að bíða með að taka mynd þar til fólk er alveg hætt að fylgjast með því sem ég er að gera,“ segir Brynjar. „Ljósmyndunin er bæði aðalstarf og aðaláhugamál. Ég fer aldrei neitt nema vera með vélina með mér,“ segir Brynjar.Ómar Ragnarsson „Ómar var þarna að dæma í Tom Selleck-mottukeppni sem er haldin árlega á Boston.“Bókin er tileinkuð föðurbróður Brynjars, Guðmundi Páli Ólafssyni heitnum. „Það er gert af virðingu við góðan dreng. Guðmundur var mjög hrifinn af þessari bók þegar hann sá hana hjá mér fyrst og tók hana með sér upp í Odda og á fleiri staði til að hjálpa mér að koma þessu af stað. Síðan höfum við verið í smá kapphlaupi um hvor okkar nær að prenta á undan, en hann er að gefa út bókina Vatnið. Þannig að við erum búnir að vera á sitt hvorri prentvélinni, hlið við hlið. Svo þegar ég var búinn að prenta á undan honum, fyrir um það bil þremur vikum, kom upp einhver galli í prentuninni sem hefur ekki gerst í áratug. Svo það þurfti að prenta bókina aftur – ég hef frænda minn grunaðan um græsku, þar hefur Guðmundur eitthvað verið að fikta – en nú erum við settir á sama dag,“ segir Brynjar og segist hlakka til fæðingarinnar.
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira