Nýr veitingastaður með hesthús í bakgarðinum í hjarta borgarinnar Gunnar Leó Pálsson skrifar 7. desember 2013 11:00 Óli Már Ólason er ásamt Stefáni Magnússyni og Andra Birni Björnssyni að opna veitingastað við Skólavörðustíg sem ber nafnið Kol Restaurant. fréttablaðið/anton brink „
Þetta verður svona „casual fine dining“ veitingastaður en við ætlum einnig að hafa hann svona stemningsstað því við erum líka með stóran bar,“ segir Óli Már Ólason, einn þriggja eigenda nýs veitingastaðar sem ber nafnið Kol Restaurant. Ásamt Óla eru þeir Stefán Magnússon og Andri Björn Björnsson eigendur staðarins en fyrir eiga þeir veitinga- og skemmtistaðina Vegamót og Lebowski. „Við viljum gjarnan nýta hesthúsið sem er í bakgarðinum.“ Í bakgarðinum stendur elsta hesthús Reykjavíkur og er stefnt að því að nýta það sem hluta af staðnum. „Húsafriðunarnefnd berst nú fyrir því að það verði ekki rifið en við viljum tengja það veitingastaðnum,“ bætir Óli við. Þeir hafa fengið til sín fagmenn til að sjá um matreiðsluna. „Einar Hjaltason og Kári Þorsteinsson sjá um eldamennskuna en þeir hafa báðir starfað erlendis eins og á Dabbouf, 2850 og Texture í London.“ Þess má geta að á staðnum er einstakur viðarkolaofn sem mun töfra fram ljúft og seiðandi bragð. Í salnum mun Gunnar Rafn Heiðarsson galdra fram sérstaklega vandaða kokteila þar sem öll síróp og safar eru heimagerð en áður starfaði hann sem veitingastjóri á Sjávarkjallaranum og Slippbarnum. Hönnun staðarins er í höndum Leifs Weldings og Brynhildar Gunnarsdóttur arkitekts. Staðurinn tekur um hundrað manns í sæti en þeim gæti þó fjölgað ef hesthúsið verður hluti af staðnum. Kol Restaurant við Skólavörðustíg verður opnað í byrjun janúar.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira