Fullbúið danshús í Reykjavík Dagný Gísla. skrifar 7. desember 2013 12:00 Samtímadans, ballett, jóga, pilates, tangó og danseróbikk er í boði. Mynd/Hulda Sif Ásmundsdóttir
Dansverkstæðið var stofnað af danshöfundunum Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og Steinunni Ketilsdóttur sem voru að leita að heppilegu húsnæði fyrir vinnu sína. Þær tóku þá á leigu stórt rými við Skúlagötu og nú blómstrar þar sköpun í danslist. „Mikil gróska hefur verið í dansinum hér á landi síðustu ár en það hefur ekki verið aðstaða fyrir sjálfstætt starfandi danshöfunda til að vinna að nýjum verkum,“ segir Tinna Grétarsdóttir, verkefnastýra Dansverkstæðisins.Mynd/Hulda Sif Ásmundsdóttir„Sveinbjörg og Steinunn gerðu sér grein fyrir möguleikum húsnæðisins á Skúlagötu og í samstarfi við Ólöfu Ingólfsdóttur og Karenu Maríu Jónsdóttur, sem voru að vinna skýrslu um danshús á Íslandi, stofnuðu þær félagssamtökin Samtök um danshús, sem sér um rekstur Dansverkstæðisins,“ segir Tinna. Samtökin hafa það markmið að reka fullbúið danshús í Reykjavík, sem verður öruggt framtíðarheimili danslistarinnar á Íslandi. Dansverkstæðið er duglegt að skipuleggja hina ýmsu viðburði og taka þátt í hátíðum í Reykjavík. Einnig hafa verið haldin hin vinsælu hádegispartí eða „lunch beat“ í þeirra húsum. Rýmið er vel nýtt og boðið er upp á spennandi morguntíma tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga, sem hægt er að kíkja í eftir hentisemi. „Reynt er að hafa fjölbreytta tíma sem henta dönsurum og dansáhugamönnum, til dæmis samtímadans, ballett, jóga, pilates, tangó og danseróbikk. Tímarnir eru stílaðir á lengra komna en allir eru velkomnir,“ segir Tinna. Nánari upplýsingar á danceatelier.isMynd/Hulda Sif Ásmundsdóttir
Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hvað veistu um… pitsur? Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Lífið Chris Brown á skilorði Lífið Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira