Gus Gus fékk stjörnumóttökur í Rússlandi Ugla Egilsdóttir skrifar 21. nóvember 2013 09:00 Þyri Huld fékk ásamt öðrum dönsurum Íslenska dansflokksins Grímuverðlaunin árið 2012 í flokknum Danshöfundur ársins. Mynd/Einkasafn
Þyri Huld Árnadóttir dansari ferðaðist til Síberíu og Moskvu með hljómsveitinni Gus Gus, meðal annars til bæjarins Norilsk, sem aðkomufólk fær alla jafna ekki leyfi til að sækja heim. Þar og víðar héldu Gus Gus og Íslenski dansflokkurinn í sameiningu tónlistar- og danssýninguna Á vit. Ferðin til Norilsk var listamönnunum sérstaklega eftirminnileg. „Við þurftum að fá sérstakt leyfi til að fá að vera þarna,“ segir Þyri Huld. Bærinn er meðal annars þekktur fyrir að höfuðstöðvar Norillag-gúlagsins voru við bæjarmörkin. Þar fer fram stór hluti af allri nikkelframleiðslu heimsins og af þeim sökum er borgin ein af tíu menguðustu borgum veraldar. „Það er ekki eitt grænt grasstrá í margra kílómetra radíus út frá borginni. Hins vegar voru herbergin full af plöntum sem sátu á stólum inni á hótelinu okkar.“ Þyri segir sýninguna hafa fengið afar góðar viðtökur. „Gus Gus er mjög stórt nafn í Rússlandi. Þau eru algjörar stjörnur.“ Eftir þessa sérstæðu reynslu hópsins í Síberíu tók við meiri íburður í höfuðborg Rússlands. „Þar vorum við að sýna á einkaklúbbi í einkapartíi fyrir flotta fólkið í Moskvu sem var algjör andstæða við það sem við áttum að venjast í Norilsk. Það var eins og að koma inn í annan heim, svakalega góður matur og allt gert fyrir okkur.“ Þyri Huld segir að í Á vit sé listformum blandað saman í meira mæli en oft er gert. Sýningin sé algjör blanda af tónleikum og danssýningu og erfitt sé að greina muninn þarna á milli.Samstarfsverkefni Á vit er samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins, Gus Gus, Hörpu og Listahátíðar í Reykjavík.Mynd/Einkasafn„Venjulega í dansinum er tónlistin fyrst búin til og við dönsum svo eftir henni en þarna má segja að söngvararnir séu hluti af dansverkinu.“ Þyri ber hljómsveitinni afar vel söguna og segir samstarfið hafa verið ánægjulegt. „Það var ótrúlega gaman að fá þetta tækifæri til að gera verk með Gus Gus, enda eru þau öll frábærir listamenn.“ Hópurinn frumsýndi verkið á Listahátíð í Reykjavík 2012 og hefur einnig farið til Danmerkur með sýninguna. Fyrir þau sem misstu af sýningunni á Listahátíð bendir Þyri á að ekki sé ástæða til að örvænta því Á vit verði sýnt aftur á Íslandi á næsta ári. Um þessar mundir er Þyri á ferðalagi um Belgíu, Frakkland og Þýskaland að sýna verk sem heitir H, an Incident og er eftir belgískan höfund sem heitir Kris Verdonck. Sýningin er unnin í samstarfi við Shalala. Í janúar frumsýnir hún síðan nýtt íslenskt dansverk sem heitir Óraunveruleikir í Kassanum í Þjóðleikhúsinu ásamt Urði Hákonardóttur og Valgerði Rúnarsdóttur.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira