Dansa af sér rassgatið á Park Freyr Bjarnason skrifar 1. nóvember 2013 08:30 Össur Hafþórsson á nýjasta skemmtistað sínum, Park. fréttablaðið/pjetur „
Þessi staður er fínn fyrir fólk sem vill koma og dansa af sér rassgatið,“ segir Össur Hafþórsson. Hann opnar í kvöld skemmtistaðinn Park á Hverfisgötu 20 þar sem Hverfisbarinn var eitt sinn til húsa. Þar verður elektrónísk danstónlist í boði og ætti fólk því að geta sleppt fram af sér beislinu í trylltum dansi. Auk Össurar eru kona hans Linda Mjöll Þorsteinsdóttir og Eyvindur Eggertsson eigendur staðarins. „Faktorý var með hliðarsal helgaðan raftónlist og var að sinna því mjög vel. Eftir að sá staður hætti vantaði góðan dansstað á þessu efra svæði með alvöru hljóðkerfi,“ segir Össur um Park, sem býður upp á kerfi af tegundinni Function One frá Óla ofur. Össur átti áður skemmtistaðinn Sódómu en seldi hann árið 2010. Núna rekur hann Bar 11 á Hverfisgötu og Bar 7 á Frakkastígnum, auk húðflúrsstofunnar Reykjavík Ink á Frakkastíg ásamt Lindu Mjöll. Fríar veitingar verða í boði á Park í kvöld milli kl. 21 og 23 og er öllum boðið. „Það eru allir velkomnir, ekkert VIP. Vonandi sjáum við sem flesta,“ segir Össur. Arnar og Frímann úr Hugarástandi koma fram í kvöld, auk BenSol. Á laugardaginn mætir Alex Session frá London. Hann hefur notið vinsælda síðustu tíu ár og kom lengi fram undir nafninu Noisses. Sama kvöld kemur plötusnúðurinn Margeir fram.
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira