Vill flytja tólf metra kafbát til Íslands Freyr Bjarnason skrifar 28. október 2013 07:00 Ásgeir Einarsson dreymir um að reka ferðaþjónustu í kringum kafbát sem hann ætlar að kaupa í Bandaríkjunum. „
Við erum með svo hreinan sjó, þetta er bara eins og að sitja í rútu neðansjávar,“ segir Ásgeir Einarsson frá Akranesi, sem hefur verið atvinnukafari í fjörutíu ár. Hann er að leita að tólf metra kafbát í Bandaríkjunum sem hann hyggst nota í ferðaþjónustu strax næsta sumar. Ætlunin er að fara með hópa í neðansjávarferðir en Ásgeir hefur gengið með þessa hugmynd í maganum frá því hann var lítill krakki og hefur skoðað kafbáta sér til gamans bæði í Reykjavík og Bretlandi. „Þetta umhverfi er mun fallegra en hálendið, miklu fallegra. Ég held að Breiðafjörðurinn verði ein mesta ferðamannaparadís í Evrópu í framtíðinni. Eyjarnar þar standa á súlum þar sem sjórinn hefur étið upp bergið. Þar undir er svo allt krökkt af rækju og síld. Þetta er eiginlega ólýsanlegt,“ segir hann og bætir við: „79 prósent af heiminum er undir vatni. Þarna er óspillt land og þarna eru menn ekkert að rífast um hraun og veg eða eitthvað annað. Við eigum hreinasta sjó í heimi og höfum mikið að sýna.“ Ásgeir segir tugi skipa liggja á hafsbotni víðsvegar í kringum landið. Nefnir hann frystitogara sem hann á sjálfur sem sökk fyrir vestan fyrir þrjátíu árum. „Svo er Þrymur í Tálknafirði og rækjubátar í Arnarfirðinum. Á mýrunum á Snæfellsnesi eru líka tugir skipa sem liggja þar í sjónum, svo eitthvað sé nefnt.“ Ásgeir, sem er 61 árs, ætlar að markaðssetja ferðirnar sem háklassa ferðaþjónustu og nefnir að þyrluflugmenn séu að fljúga nánast allan sólarhringinn. „Því held ég að fólk hafi alveg áhuga á að komast í svona ferðir.“ Spurður hvað kosti að fá svona kafbát til Íslands segir hann þetta vera „milljónaspursmál“. „Það er verið að vinna í þessu á fullu. Það eru margir fjársterkir aðilar að spá og spekulera með mér í þessu.“ Hann býst við að í kringum tíu manns kæmust í hverja ferð í kafbátnum, það er ef leyfi myndi fást fyrir þessari nýstárlegu ferðaþjónustu. Hver og einn þyrfti að punga út tugum þúsunda króna, rétt eins og þeir sem fara í þyrluflug. Ásgeir segist vilja deila áratuga reynslu sinni neðansjávar með öðru fólki áður en hann fer í gröfina. „Aðrir skrifa bók og segja frá því sem þeir hafa séð og upplifað. Þetta er eitthvað sem ég er búinn að skoða og það kitlar mig alveg svakalega að geta sýnt öðru fólki undir sjávarmálið."
Mest lesið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira