Frægur dansari dæmir í dansbardaga Sara McMahon skrifar 24. október 2013 13:00 Emilio Austin Jr. ásamt Brynju Pétursdóttur, hún skipuleggur dansbardaga sem fram fer á laugardag. Fréttablaðið/Pjetur
Dansbardagi fer fram í íþróttahúsi Seljaskóla á laugardag klukkan 16. Dansskóli Brynju Péturs stendur fyrir viðburðinum og er bandaríski dansarinn og danshöfundurinn Emilio Austin Jr, öðru nafni Buddha Stretch, kominn hingað til lands til að dæma í keppninni. Austin var fjórtán ára þegar hann hóf að æfa dans og byrjaði feril sinn sem „b-boy“, eða breik-dansari. Hann segist þó ekki hafa verið sérlega fær í breik-dansinum og því skipti hann fljótlega yfir í „popping“, sem er danstegund náskyld hiphop-dansi. „Ég reif alltaf fötin mín í breik-dansi, sem var sönnun þess hversu lélegur ég var, almennilegur breik-dansari rífur ekki göt á fötin sín,“ segir hann og hlær. Hiphop-menningin var að ryðja sér rúms á þessum tíma og tók Austin fullan þátt í mótun þess. „Dansgengi spruttu upp víða og í mörgum tilfellum urðu þau þín önnur fjölskylda, jafnvel þín eina. Það er kannski hægt að líkja dansgengi við fótboltalið; allir kunna að spila fótbolta en þó hefur hver og einn sitt hlutverk innan liðsins. Allir í dansgengi geta dansað, en svo ertu með poppara eða breikara.“Svaraði spurningum Michael Jackson Austin á langan feril að baki sem danshöfundur og hefur meðal annars unnið náið með tónlistarfólki á borð við Busta Rhymes, Mariah Carey, Will Smith, Salt‘n Pepa, Whitney Houston, Public Enemy, Run DMC og Michael Jackson. Spurður út í Michael Jackson segir Austin: „Hann var í einu orði sagt magnaður! Og alveg sérstaklega lærdómsfús, hann vildi vita allt um hiphop og uppruna þess og spurði þúsund spurninga. Ég var 23 ára þegar þetta var og það var skrítið að standa frammi fyrir Jackson og svara spurningum hans,“ rifjar hann upp. Þetta er í fyrsta sinn sem Austin sækir Ísland heim. Aðspurður segist hann helst leita eftir fimm atriðum í fari dansara. „Takti, tækni, færni, hversu skapandi dansara eru og karakter – hið síðastnefnda er það mikilvægasta að mínu mati,“ segir hann að lokum.Hér að neðan má sjá myndbandið með Michael Jackson sem Austin vann að.
Mest lesið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira