SÍBS fagnar 75 ára afmæli í Hörpu í dag Gunnar Leó Pálsson skrifar 24. október 2013 10:00 Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS, fagnar afmælinu í Hörpu í dag. „
SÍBS hefur í gegnum 75 ára sögu félagsins bjargað þjóðinni frá ýmsum faröldrum, kom fyrst til aðstoðar berklasjúklingum en nú eru lífsstílssjúkdómarnir hættulegastir,“ segir Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS, sem fagnar 75 ára afmæli félagsins í dag í Norðurljósasal Hörpu klukkan 16.00. Fyrir 75 árum stofnuðu berklasjúklingar með sér samtök, meðal annars með það að markmiði að hjálpa sjúklingum að ná fótfestu í lífinu eftir langa dvöl á heilsuhælum. Í kjölfarið urðu ýmsar stofnanir til eins og margir þekkja. Reykjalundur var stofnaður, SÍBS hafði forgöngu um stofnun Öryrkjabandalagsins, Múlalundur var stofnaður, SÍBS kom að stofnun HL-stöðvanna, Múlabæjar og Hlíðabæjar. „Nú stöndum við frammi fyrir nýrri ógn sem eru svokallaðir lífsstílssjúkdómar en það eru sjúkdómar sem við getum haft áhrif á með því að breyta slæmum lífsvenjum eins og óhollu mataræði, lítilli hreyfingu, reykingum og óhóflegri áfengis- og vímuefnaneyslu,“ segir Guðmundur um vandamál samtímans. Þetta eru þeir sjúkdómar sem virðast verða algengari eftir því sem samfélög verða þróaðri og fólk lifir lengur. Á þessum tímamótum horfir SÍBS hins vegar fram á við, og stuðlar að bættri heilsu almennings og heilbrigðari lífsstíl með forvörnum og upplýsingagjöf, auk þess að sinna endurhæfingu þeirra, sem hafa sökum veikinda, slysa, eða lífsstíls þurft að byggja sig upp á nýjan leik. „Ein besta fjárfesting í mannauði felst í forvörnum. Ráðamenn vita hvað það kostar að vera með sjúkrahúsrúm eða pláss á hjúkrunarheimili. En hvað er hægt að spara mikið í heilbrigiðiskerfinu með forvörnum?“ spyr Guðmundur. Ásamt því að fagna afmæli, verður á afmælishátíðinni kynnt útgáfa nýrrar bókar, Sigur lífsins, SÍBS í 75 ár 1938–2013, eftir Pétur Bjarnason. Bókin er í senn saga SÍBS og tengdra stofnana, en ekki síður mikilvægur hluti heilbrigðissögu þjóðarinnar á síðustu öld.
Mest lesið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira