Andrea Maack með innsetningu í London Ólöf Skaftadóttir skrifar 17. október 2013 08:00 Andrea Maack sést hér vinna að gluggainnsetningunni í London. Mynd/Saga Sig
Myndlistarmaðurinn og ilmhönnuðurinn Andrea Maack lauk nýverið við að setja upp stóra gluggainnsetningu í stórversluninni Fenwicks á Bond Street í London. „Þetta er stærsti glugginn okkar hingað til og jafnframt í fyrsta sinn sem Fenwicks gefur myndlistarmanni algjört frelsi til að hanna glugga,“ segir Andrea. Fenwicks er þekkt stórverslun í Bretlandi sem selur tískuvörur og fylgihluti frá stórum hönnunarfyrirtækjum á borð við Stella McCartney, Kenzo, Missoni og Paul Smith. „Þetta er rosalega skemmtilegt verkefni og jafnframt mikill heiður fyrir mig,“ heldur Andrea áfram. Andrea býr og starfar á Ítalíu um þessar mundir þar sem hún vinnur að nýrri ilmvatnslínu, en ilmvötn Andreu hafa farið sigurför um heiminn og eru fáanleg í yfir tuttugu löndum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Mið-Austurlöndum og á Íslandi. Andrea hefur verið iðin við kolann undanfarið ár. Hún hefur vakið mikla athygli í erlendri pressu og fjallað hefur verið um hana í glanstímaritum á borð við Vogue, Marie Claire, Costume og Elle svo einhver séu nefnd. Auk þess opnaði Andrea sýninguna Kaflaskipti, ásamt Hugin Þór Arasyni, í Hafnarhúsinu síðastliðið vor, en þar mættust tíska og myndlist á einni sýningu.
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Lífið „GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ Tónlist Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Fleiri fréttir Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Sjá meira