Falda aflið er 90 prósent fyrirtækja landsins Birgir Bjarnason skrifar 25. september 2013 06:00 Þrátt fyrir að 90% fyrirtækja á Íslandi séu í hópi minni eða meðalstórra fyrirtækja hefur þessi hópur mætt afgangi við stefnumótun stjórnvalda síðustu ár. Hagvöxtur lætur á sér standa. Það þarf nýja stefnu. Tími er kominn til að beina kröftum að því falda afli sem býr í minni og meðalstórum fyrirtækjum. Félag atvinnurekenda ýtir þessa dagana úr vör átaki sem snýr að þessum fyrirtækjum. Átakið er ákall til stjórnvalda um að tryggja þessum fyrirtækjum góð og uppbyggjandi skilyrði þannig að þau megi dafna og þroskast á sama tíma og þau styrkja undirstöður þjóðfélagsins. FA hefur dregið fram tólf atriði í tillögum sem eiga að móta samvinnuvettvang þar sem aðilar geta skipst á skoðunum og mótað stefnu til framtíðar í þágu minni og meðalstórra fyrirtækja. Innan vébanda FA eru 180 fyrirtæki með um fjögur þúsund manns í vinnu. Með réttum breytingum nýtum við bjargráðin sem felast í þeim. Með því að styðja við átak FA geta enn fleiri fyrirtæki haft jákvæð áhrif á þróun samfélagsins og um leið gjörbylt starfsumhverfi sínu. Takmörk á eignarhaldi banka á fyrirtækjum, skilvirkari fjármögnunarleiðir, aðgerðir gegn kennitöluflakki, lækkun tryggingagjalds og afnám vörugjalda eru aðeins nokkur þeirra atriða sem við munum leggja áherslu á. Nánari útlistanir má sjá á atvinnurekendur.is auk þess sem unnt verður að fylgjast með framvindu einstakra mála á hverjum tíma. Tökum höndum saman. Við erum góð í því sem þjóð. Skjótum styrkum stoðum undir samfélagið sem hægt er að byggja á til framtíðar. Þegar einu verkefni er lokið tekur annað við. Við munum ekki sitja auðum höndum þrátt fyrir að markmiðum verði náð heldur setja okkur ný markmið. Við hjá FA vonum að sem flestir sjái hag í því að styðja við þau verkefni sem hverju sinni eru í farveginum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Sanna sundrar vinstrinu Guðbergur Egill Eyjólfsson Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson Skoðun Myndu ekki þurfa að flytja heim aftur Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir Skoðun Skatta-Grýlan ógurlega Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason Skoðun Þegar áfengið rænir jólunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson skrifar Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason skrifar Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslensk ferðaþjónusta í nýju landslagi Ólína Laxdal skrifar Skoðun Sköpum öflugt, hafsækið atvinnulíf á viðskiptalegum forsendum! Gunnar Tryggvason skrifar Skoðun Hefurðu heyrt söguna? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Teygjum okkur aðeins lengra Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Spilakassar í skjóli mannúðar og björgunar Alma Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traustur grunnur, ný tækifæri Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Sanna sundrar vinstrinu Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Myndu ekki þurfa að flytja heim aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar áfengið rænir jólunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Skatta-Grýlan ógurlega Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson skrifar Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hvað hafa sjómenn gert Samfylkingunni? Sigfús Karlsson skrifar Skoðun Framtíð Suðurlandsbrautar Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Pípararnir okkar - Fagstéttin, metfjöldi, átakið, stuðningur Snæbjörn R. Rafnsson skrifar Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson skrifar Skoðun Ég ákalla! Eyjólfur Þorkelsson skrifar Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Samgöngumálið sem ríkisstjórnin talar ekki um Marko Medic skrifar Skoðun Mannréttindaglufur og samgönguglufur Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ólaunuð vinna kvenna Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Stjórnvöld beita sleggjunni og ferðaþjónustan á að liggja undir höggum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Ólögmæt mismunun eftir búsetu öryrkja fest í lög á Íslandi Jón Frímann Jónsson skrifar Sjá meira
Þrátt fyrir að 90% fyrirtækja á Íslandi séu í hópi minni eða meðalstórra fyrirtækja hefur þessi hópur mætt afgangi við stefnumótun stjórnvalda síðustu ár. Hagvöxtur lætur á sér standa. Það þarf nýja stefnu. Tími er kominn til að beina kröftum að því falda afli sem býr í minni og meðalstórum fyrirtækjum. Félag atvinnurekenda ýtir þessa dagana úr vör átaki sem snýr að þessum fyrirtækjum. Átakið er ákall til stjórnvalda um að tryggja þessum fyrirtækjum góð og uppbyggjandi skilyrði þannig að þau megi dafna og þroskast á sama tíma og þau styrkja undirstöður þjóðfélagsins. FA hefur dregið fram tólf atriði í tillögum sem eiga að móta samvinnuvettvang þar sem aðilar geta skipst á skoðunum og mótað stefnu til framtíðar í þágu minni og meðalstórra fyrirtækja. Innan vébanda FA eru 180 fyrirtæki með um fjögur þúsund manns í vinnu. Með réttum breytingum nýtum við bjargráðin sem felast í þeim. Með því að styðja við átak FA geta enn fleiri fyrirtæki haft jákvæð áhrif á þróun samfélagsins og um leið gjörbylt starfsumhverfi sínu. Takmörk á eignarhaldi banka á fyrirtækjum, skilvirkari fjármögnunarleiðir, aðgerðir gegn kennitöluflakki, lækkun tryggingagjalds og afnám vörugjalda eru aðeins nokkur þeirra atriða sem við munum leggja áherslu á. Nánari útlistanir má sjá á atvinnurekendur.is auk þess sem unnt verður að fylgjast með framvindu einstakra mála á hverjum tíma. Tökum höndum saman. Við erum góð í því sem þjóð. Skjótum styrkum stoðum undir samfélagið sem hægt er að byggja á til framtíðar. Þegar einu verkefni er lokið tekur annað við. Við munum ekki sitja auðum höndum þrátt fyrir að markmiðum verði náð heldur setja okkur ný markmið. Við hjá FA vonum að sem flestir sjái hag í því að styðja við þau verkefni sem hverju sinni eru í farveginum.
Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson skrifar
Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Stjórnvöld beita sleggjunni og ferðaþjónustan á að liggja undir höggum Þórir Garðarsson skrifar
Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir Skoðun