Vesenið alltaf á þessu gamla fólki Kristín Guðmundsdóttir skrifar 19. september 2013 06:00 Sértu komin á efri ár og búsettur í Reykjavík er margt sem þú þarft að læra, þurfir þú að nýta þér aðstoð frá borginni. Að fara í bað er þá ekki bara að fara í bað. Þú þarft að velja þér baðdag (hann er einu sinni í viku) sem ekki ber upp á aðfangadag, gamlársdag o.s.frv., þá er böðun ekki í boði. Gamalmenni þurfa því að liggja yfir dagatalinu um áramót og finna góðan dag ætli þau að fá jóla- og áramótaböðun. Ef þau hafa þessa getu, gætu þau orðið heppin og dagurinn þeirra samþykktur. Annars verða þau að borða jólasteikina…skítug, kveðja gamla árið…skítug og bíða aðra viku eftir að fá að komast í snertingu við vatn. En þurfa þau endilega að vera hrein? Þetta eru bara þrjár vikur af heilum 52 í árinu. Og þar sem þrif á heimilum þeirra eru bara aðra hvora viku er varla skítugt hjá þeim, það fellur bara ein vika út. Það góða við þessa þjónustu er að gamla fólkið kynnist fjöldanum öllum af starfsfólki borgarinnar. Hverjum þykir ekki gaman að fá alltaf nýtt fólk til að baða sig? Sumir þeirra eru jafnvel með annað tungumál svo tvær flugur eru slegnar í einu höggi, böðun og tungumálakennsla…allt fyrir eldri borgara. Og þetta eru m.a.s. mörg mismunandi tungumál. Þá kemur gúggul transleit að góðum notum. Eru ekki allir með tölvu og internet?Ertu ekki á bíl? Sértu kominn í þá stöðu að þú treystir þér ekki til að búa einn í eigin húsnæði er best fyrir þig að vera vel illa farinn. Þá geturðu kannski sótt um hjúkrunarpláss. Sé staða þín hins vegar félagsleg einangrun (illskiljanlegt þó þar sem þú færð „heimsókn“ að minnsta kosti einu sinni í viku, 1-2 klukkustundir frá borginni), hættur að matreiða, smá svimi í gangi, manst ekki allt eins vel og áður o.s.frv. þá er möguleiki á að sækja um þjónustuíbúð. Þú nærð í umsókn hjá félagsþjónustunni, ferð til læknis sem metur þig og endar svo hjá skattinum. Sem sagt, læknisvottorð og skattayfirlit verða að fylgja þessari umsókn þinni. Ertu ekki á bíl? Hmm…að verða níræður? Við leysum úr því. Ferðaþjónusta eldri borgara sér um að koma þér á staðinn. Hefurðu ekki sótt um? Þú verður að gera það. Er búið að sækja um…hvenær? Fyrir rúmu ári? Gengur ekki, þú verður að muna að endurnýja umsóknina einu sinni á ári. Byrjum þar og þá ertu frjáls ferða þinna. Mundu bara að panta bílinn deginum áður. Umsóknin kemst á réttan stað með fylgiskjölum. Biðlistinn er langur svo þú verður að muna að láta vita af þér á sex mánaða fresti, annars gleymist þú eða týnist í kerfinu. Gleymska er engin afsökun þótt þú sért gamall, starfsmenn borgarinnar geta ekki staðið í að fylgjast með þér og þínum þörfum. Þeir fá laun fyrir allt annað og „veigameira“.Þetta áttu að vita Sem eldri borgari geturðu sótt um tímabundna vistun, t.d. á Landakoti. Þar er vissulega unnið þarft og gott starf. Þú ert byggður upp, bæði líkamlega og andlega. Þú hittir fólk á þínum aldri og nýtur þess að vera til…þú ert til! Þegar Landakot hefur lokið sínu góða starfi tekur við dagvistun. Allt gengur smurt, umsóknin löngu farin og þú endurnærður, tilbúinn í að halda áfram. Mundirðu eftir að hringja og ýta á eftir umsókninni? Enginn sem sagði þér það? Þetta áttu að vita, kominn á þennan aldur. Manstu ekki númerið? Var það skrifað niður fyrir þig? Minnisleysi og elliglöp engin afsökun, þú getur bara gúgglað það. Borgin hefur jú öðrum málum að sinna. Þú verður að muna það. Biðlistinn er langur og nú þarftu bara að bíða í u.þ.b. hálft ár eftir plássi. Þá er gott að hafa „vini“ þína sem baða þig og kenna þér tungumál einu sinni í viku. Þú verður þá ekki einmana á meðan eða kominn aftur á þann stað sem þú varst áður en þú fékkst inni á Landakoti…eða hvað? Ertu ekki búinn að strita alla ævi? Ertu ekki búinn að skila þínu verki og gott betur? Þú hlýtur þá að geta munað einfalda hluti, kunna á tölvu og umfram allt að skilja að það er ekki hægt að ætlast til að fólk í fullri vinnu með alla þá tækni sem er í dag geti fylgst með þér og þínum þörfum. Það hefur ekki tíma til að athuga hvar þú ert á biðlista þótt það losni pláss einhvers staðar. Það stjórnar ekki að aðfangadagur beri upp á þinn baðdag, jafnvel þótt jólahátíðin hefjist ekki fyrr en kl. 18.00. Hver hlakkar ekki til að verða gamall í Reykjavík? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Skoðun Að semja gegn sjálfum sér Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson skrifar Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ég ætla að treysta komandi kynslóðum Margrét Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvernig er að eiga sæti við borðið Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Pólitískir vindhanar sem vilja nú hafa afstöðu af þjóð Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun „Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB,“ sagði engin þjóð aldrei Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar
Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun