Bar að auglýsa úthlutun við Fjallsárlón Garðar Örn Úlfarsson skrifar 17. september 2013 21:25 Siglt um Jökulsárlón Mynd/Valli
Fyrirtækið Must Visit Iceland á ekki heimtingu á að setja upp aðstöðu fyrir þjónustu sína í þjóðlendu við Jökulsárlón. Must Visit Iceland óskaði fyrir þremur árum eftir heimild Hornafjarðar til að koma upp aðstöðu við Jökuslárlón en sveitarfélagið hafnaði því. Fyrirtækið kom sér engu að síður fyrir á vesturbakka lónsins á árinu 2011 og hefur verið þar síðan. Á þessu ári var svo sótt um leyfi að nýju en því var aftur hafnað og kærði fyrirtækið þá synjun. Must Visit Iceland taldi sig hafa óformlegt leyfi fyrir starfsemi sinni frá byggingarfulltrúa og vísaði einnig í að Hornafjörður hefði veitt fyrirtækinu Fjallsárlóni ehf. leyfi fyrir stöðuleyfi fyrir kerrum, bryggju og þremur slöngubátum við Fjallsárlón sem er skammt vestan við Jökulsárlón. Fyrirtækin selja bæði bátsferðir. Forsætisráðuneytið segir stöðuleyfið til Fjallsárlóns ehf. ekki hafa verið í samræmi við góða stjórnsýsluhætti og því ekki hægt að miða við þá leyfisveitingu. Ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlendna feli í sér úthlutun takmarkaðra gæða sem geti haft mikla fjárhagslega þýðingu. „Í samræmi við góða stjórnsýsluhætti er því rétt að tilkynna í auglýsingu um hina fyrirhuguðu leyfisveitingu og kalla eftir umsóknum um að hljóta leyfi til nýtingar lands eða landsréttinda innan þjóðlendu áður en leyfi er veitt. Slík stjórnsýsluframkvæmd stuðlar að jafnræði borgaranna og gegnsærri stjórnsýslu,“ segir forsætisráðuneytið. Þá segir forsætisráðuneytið það hafa verið málefnalegt og lögmætt hjá Hornafirði að synja um uppbyggingu við Jökulsárlón þar sem í aðalskipulagi sé ekki gert ráð fyrir atvinnustarfsemi þar.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira