Leiðtogaprófkjörið líklegasta niðurstaðan Stígur Helgason skrifar 13. september 2013 08:15 Sex hafa einkum verið orðuð við framboð í oddvitasætið hjá flokknum. Fjögur eru nú borgarfulltrúar; Gísli Marteinn Baldursson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir. Auk þeirra hafa þingmaðurinn Guðlaugur Þór Þórðarson og Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði, verið nefndir til sögunnar.
Stjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, kemur saman á fundi í dag og mun þar móta tillögu sína að því hvernig velja skuli á framboðslista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar á næsta ári. Tillagan verður síðan borin upp á fulltrúaráðsfundi á fimmtudaginn í næstu viku. Í stjórninni sitja 26 manns og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er mikill meirihluti þeirra hlynntur því að velja oddvita listans í svokölluðu leiðtogaprófkjöri, þar sem almennum flokksmönnum gæfist færi á að velja úr hópi þeirra sem gæfu kost á sér til að leiða listann. Sú leið hefur aldrei fyrr verið farin. Óttarr Guðlaugsson, formaður stjórnarinnar, staðfestir að leiðtogaprófkjörsleiðin hafi verið mikið til umræðu án þess að nokkuð hafi þó verið ákveðið enn. „Manni heyrist nú á flestum að fólk vilji fara einhverjar nýjar leiðir, svo er bara spurning hvaða leið það er,“ segir Óttarr. Hann segir marga hrifna af hugmyndinni um leiðtogaprófkjör. „Þannig væri fólki gefið tækifæri til að verða okkar borgarstjóraefni – menn byðu sig þá fram í leiðtogasætið en ekkert annað.“ Möguleikarnir í stöðunni eru fjórir: leiðtogaprófkjörið, almennt prófkjör, uppstilling og svokölluð röðun, þar sem fulltrúaráðið sjálft kýs inn á listann, fyrst í efsta sætið, síðan í annað sætið og koll af kolli. Óttarr segir að meðal annars hafi komið til tals að halda fyrst leiðtogaprófkjör um efsta sætið en að velja afganginn af listanum með áðurnefndri röðun. Einnig kæmi þó til greina að halda einfaldlega annað prófkjör fyrir neðri sætin eða velja þá frambjóðendur með uppstillingu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru sumir stjórnarmenn mjög ósáttir við hugmyndir um leiðtogaprófkjör. Á meðal þeirra eru fulltrúar Heimdallar, ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, og Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. „Lýðræðislegasta leiðin til að velja á lista er almennt prófkjör, að flokksmenn fái að velja sína frambjóðendur,“ segir Sigríður Hallgrímsdóttir, formaður Hvatar og aðstoðarkona Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra. Ingvar Smári Birgisson, formaður Heimdallar, tekur í sama streng. „Við Heimdellingar teljum að það sé langfarsælast fyrir flokkinn að hafa almennt prófkjör,“ segir hann. Það þjóni meðal annars best hagsmunum ungs fólks sem kunni að vilja bjóða sig fram.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira