Bærinn styðji íbúa gegn háspennulínu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 5. september 2013 08:00 Háspennulínur gnæfa yfir Vallahverfi í Hafnarfirði, íbúum þar til lítillar ánægju. Fréttablaðið/GVA „
Það getur verið erfitt að sofa við opinn glugga hér í hverfinu vegna hávaða frá tengivirkinu,“ segir Pétur Pétursson, íbúi í Vallahverfi í Hafnarfirði. Háspennulínur liggja í jaðri Vallahverfis og að álverinu í Straumsvík. Pétur segir að samkvæmt samkomulagi Hafnarfjarðar og Landsnets hafi háspennulínurnar átt að vera horfnar í síðasta lagi árið 2011 og tengivirki við Hamranes nokkru síðar. Nú hafa bæjaryfirvöld hins vegar gefið Landsneti frest til ársins 2016 að hefja niðurrifið. Verkinu á að vera lokið í síðasta lagi á árinu 2020. Í svari til Péturs segir skipulagsstjóri Hafnarfjarðar að tímasetningin sé háð framkvæmdum Landsnets við svokallaðar Suðvesturlínur, sem tengjast uppbyggingu stóriðju í Helguvík. Pétur hefur reynt að fá bæjaryfirvöld til að standa með íbúunum en ekki raforkufyrirtækinu eins og honum finnst þau gera. „Það er skýrt samkomulag um að þessar línur áttu að vera farnar árið 2011 og óþarfi af bænum að gefa það eftir bara af því að það hentar Landsneti að bíða,“ segir Pétur. Hann lét til sín taka á íbúafundi í júní.Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar. „Ég benti á að við værum að tala um skert lífsgæði að búa við þetta og þá værum við ekki að tala eingöngu um sjónmengun. Það er stanslaus niður frá tengivirkinu og þegar það er raki eða rigning magnast suð frá línunum,“ rifjar Pétur upp umræður af íbúafundinum. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri tók undir með Pétri á íbúafundinum um að frestunin á niðurrifi línanna væri ekki forsvaranleg. „Það eru hins vegar alls konar fyrirvarar sem Landsnet getur notað til að fresta því að taka niður línurnar,“ er haft eftir bæjarstjóranum í fundargerð. „Er Landsnet algerlega með töglin og hagldirnar?“ spyr Pétur. „Það er eins og ég búi í 500 en ekki 27 þúsund manna samfélagi því sveitarfélagið virðist algerlega bitlaust í málinu.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira