Innlent

Eins árs undirbúningsvinna í súginn

Lovísa Eiríksdóttir skrifar
Sveinn Margeirsson
Sveinn Margeirsson
„Þessi atburðarás er afskaplega bagaleg fyrir starfsemi fyrirtækisins og markmið um aukna verðmætasköpun í kringum matvælaframleiðslu,“ segir Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, um nýlega ákvörðun Evrópusambandsins (ESB) um að ekki verði undirritaðir fleiri samningar um svokallaða IPA-styrki frá sambandinu.

Matís átti von á 240 milljóna króna styrk frá ESB í formi IPA-styrkja vegna þriggja verkefna sem stofnunin sótti um á síðasta ári. Nú liggur hins vegar fyrir að ekkert verður af styrkveitingunni.

Sveinn segir að nú verði óneitanlega mun erfiðara fyrir fyrirtækið að fylgja eftir markmiðum sínum. „Það sem við vorum að stefna að í öllum þessum verkefnum var að byggja upp og þróa nýja matvælaframleiðslu og til þess þarf fjármagn,“ bætir Sveinn við en honum þykir staðan sem nú er komin upp afar óheppileg.

Verkefnin þrjú snúa að þörungaræktun á Suðurlandi, vöruþróun með uppsjávarfisk á Austurlandi og vistvænni nýsköpun á Vestfjörðum.

„Það var lögð mjög mikil vinna í undirbúning þessara verkefna,“ útskýrir Sveinn.

Undirbúningur verkefnanna þriggja hefur staðið í um það bil ár og verkefnin eru mikilvægur hluti af áætlaðri starfsemi fyrirtækisins til ársins 2014 að sögn Sveins.

Sveinn segist ekki vera bjartsýnn á að hægt verði að keyra verkefnin áfram í óbreyttri mynd án styrkjanna. en ætlar þó ekki að gefast upp. „Þetta er hindrunarhlaup. Nú er komin ein hindrun í veginn sem þarf að leysa.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×